sunnudagur, ágúst 26, 2012
Skafti og Skapti
Nú um síðustu helgi skruppum við hjónaleysin austur í Skaptafell þar sem við hittum foreldra Krunku þar og notuðum við Polly til að koma okkur fram og til baka. Þar gerðist svo ekki mikið merkilegt en engu að síður er ætíð ljúft að koma í Skaftafell.
Á laugardeginum tókum við rólegheita 10 km göngutúr, fínn rúntur fyrir væntanlega fjölskylduferð í Skaftafell eftir einhver ár, upp að sjónarnípu og Svartafoss. Kannski það sem helst telst til tíðinda eftir þessa ferð er að sundlaugin í Svínafelli hefur lokað. Á messudag var svo skundað heim með einhverjum nokkrum stuttum stoppum. En hafi einhver áhuga má skoða myndir frá túrnum hér
föstudagur, ágúst 24, 2012
Skreppitúr til Agureyrish
Fyrir rétt rúmum mánuði síðan skutumst við hjónaleysin eina kveldstund til Agureyrish. Megin tilgangur ferðarinnar var að sníkja kveldmat og svona í leiðinni að færa smá fréttir. Svona í óspurðum fréttum. Að sjálfsögðu var myndavél með í för og auðvitað var lágskýjað og hvergi sól að sjá í höfuðstað norðurlands, né heldur yfir landinu eins og sjá má hér.
sunnudagur, ágúst 19, 2012
Skáldað við skálið
Þá er komið að næztum því árlegum viðburði í hinni margfrægu V.Í.N.-rækt þetta árið. Það er að sjálfsögðu verið að tala um hina altöluðu hjólheztaferð að Húsi Skáldsins undir Grínmannsfelli í Mosfellsdal.
Það skal hittast á hjólheztum vorum við Gullinbrúna komandi Týsdag á hinum klassíska tíma kl:1900 árdegis og stíga svo á sveif sem leið liggur um vegi, slóða, stíga og vegleysur uns hringurinn er kláraður. Þetta skal ekki haft lengra að sinni
Kv
Hjólheztadeildin
Það skal hittast á hjólheztum vorum við Gullinbrúna komandi Týsdag á hinum klassíska tíma kl:1900 árdegis og stíga svo á sveif sem leið liggur um vegi, slóða, stíga og vegleysur uns hringurinn er kláraður. Þetta skal ekki haft lengra að sinni
Kv
Hjólheztadeildin
mánudagur, ágúst 13, 2012
Læstur í búri
Þá er komið að því að halda áfram með V.Í.N.-ræktina þetta sumarið. Nú er komið að hellaferð og það ekki af verri endanum. Að þessu sinni skal haldið ofan í jörðina í hellinn Búra sem er nokkuð magnaður eins og sjá má hér.
Þar sem haldið er í austurátt þá er auðvitað hittingur við Gasstöðina kl:19:00 komandi Týsdag og haldið sem leið liggur austur á boginn. Muna bara að koma með ljós og hjálm.
Kv
Jarðálfarnir
Þar sem haldið er í austurátt þá er auðvitað hittingur við Gasstöðina kl:19:00 komandi Týsdag og haldið sem leið liggur austur á boginn. Muna bara að koma með ljós og hjálm.
Kv
Jarðálfarnir
fimmtudagur, ágúst 02, 2012
Á fellinu hanz Viffa
Það bezta við að gera plön er að þeim er alltaf hægt að breyta henti það manni.
Nú síðasta þriðjudag var ætlunin að Hvergerðingurinn myndi leiðsegja okkur uppá sitt heimafjall sem ku vera Reykjafjall ofan Hveragerðis. En þar sem fararstjórinn skyndilega forfallaðist þar sem kauði var bara í vinnuferð upp við Sultartangalón þegar áttu að leggja í´ann. Þegar þetta kom upp á daginn var ákveðið að slá þessu í kæruleysi og skella sér bara á Vífilsfell. En þarna voru:
Stebbi Twist
Krunka
á Polly
Vífilsfellið stóð alveg fyrir sínu í blíðviðrinu og varð á endanum ágætis hreyfing í bongóblíðu og útsýnið var alveg eftir því. Það þarf svo sem ekkert að hafa neitt fleiri orð um það og barasta láta myndir tala sínu máli hér
Kv
Göngudeildin
miðvikudagur, ágúst 01, 2012
Fram í Dalanna ró
Eins og sjá má hér var stefnan hjá okkur hjónaleysum að skella okkur veztur í Dali til að vera við jarðsetningu afa Krunku á messudag. Þar sem athöfnin átti að vera síðla dags messudags var óhætt að segja að maður hafi haft alla helgina til þess að gjöra eitthvað. Góðkunningi okkar V.Í.N.-verja var svo hugulsamur að bjóða okkur þak yfir höfuð vort á ættarsetri sínum á Skarðsströnd. En þau sem þarna voru á ferðinni voru:
Stebbi Twist
Krunka
á Polly
og síðan
Billi Stórhöfðingi
á Framsókn
Við byrjuðum á því að skella okkur í Grafarlaug sem nýkomin úr yfirhalningu og er betur heldur glæsilegri heldur hún var árið 2008 þegar undirritaður og VJ skelltum okkur í hana. Að því loknu var heimsókn í Laxárdalinn áður en brunað var á Skarðsströnd í bústaðinn til Billa.
Laugardagurinn rann upp bjartur en það blés aðeins. Eftir morgunmat, messu og mullersæfingar var farið í Saurbæjarkirkjugarð til að hjálpa til við að gera gröfina klára fyrir kerið. Þegar því var lokið skiptum við á bílum við tengdó og fórum sem leið lá í næztu sýzlu til að rölta á Vaðalfjöll. Skemmst er frá því að segja að það tókst með eindæmum vel að toppa. Eftir að hafa dvalið skamma stund á toppnum var ákveðið að þvo af sér ferðarykið í Grettislaug á Reykhólum. En þar komumst við í feitt og fengum sannkallaða vinninga því þar var sýning á forndráttarvélum og fékk Litli Stebbalingurinn að sitja í einum árgerð 55 af Deutz gerð og líka taka í. Þar sem þetta lengdist aðeins þá var hætt að hleypa ofan í er komið var á svæðið. Þá var ætlunin að fara í laugina á Laugum í Sælingsdal en þangað náuð við heldur ekki í tæka tíð svo það var látið duga að skella sér ofan í Guðrúnarlaug. Eftir hressandi bað var okkur boðið í grillveizlu að Svarfhóli. Þegar allir voru orðnir mettir var Fellsströndin ekin að bústaðinum og hlustað á útsendingu frá Bræðslunni á meðan. Það tók svo við videokveld þegar ,,heim" var komið.
Á messudag var svo sem ekki mikið gert nema auðvitað jarðsetningin en við skellum okkur að vísu í sund á Laugum í Sælingsdal og kíkjum á jörðina sem afi Krunku og móðir bjuggu eitt sinn á.
Annars fyrir áhugasama má skoða myndir hér
sunnudagur, júlí 29, 2012
Enn og aftur Reykjaeitthvað
Þá er komið að síðasta dagskrárliðnum í V.Í.N.-ræktinni í júlímánuði þetta árið. Líkt og hefur verið eins konar þema þetta sumarið þá er það Reykjaeitthvað.
Að þessu sinnu ætlar sjálfur Hvergerðingurinn að teyma okkur á heimaslóðir sínar komandi Týsdag og rölta þá upp á hanz heimafjall sem ku vera Reykjafjall. Hittingur er við Gasstöðina á þriðjudag kl:1900. Sum sé allt frekar sígild svo sem
Kv
föstudagur, júlí 27, 2012
Verzlunarmannahelgar hugrenningar
Núna þegar þetta er krasað niður er ekki nema slétt vika i verzlunarmannahelgi og ekki stendur til að fara á Þjoðhátíð. Sá sem þetta ritar er svo sem lítið farinn að hugsa um næztu helgi en þar sem við hjónaleysin verðum að vísu byrjuð í sumarfríi þá munum við án efa hefja ferðalag flöskudeginum.
Eina sem heyrst hefur er hugmynd frá Eldri Bróðirnum um að halda til Kerlingafjalla. Ma rölta þar á Loðmund og kíkja í laugina þar eða borholuna. Það verður að segjast að heyrst hafa mun verri tillögur en að fara í Kelló og er alveg vel athugandi að því gefnu að spámenn ríkizins hagi sér vel
Annars er ekkert neglt niður en gaman væri að fá hugmyndir lumi fólk á slíku. Svo er annað að ekki er svo sem reiknað með miklum undirtektum frekar en fyrri daginn. En orðið er laust í skilaboðaskjóðinni
fimmtudagur, júlí 26, 2012
Reykjahjólafell
Rétt eins og auglýst hér var ætlunin að fara á Fagradalsfjall í síðasta dagskrárlið V.Í.N.-ræktarinnar. En plön eru jú til þess að breyta þeim. Þar sem engin hafði boðað sig þá var ákveðið að bregða útaf áður auglýstum dagskrárlið og þess í stað stíga á hjólhestana, stíga á sveif til Mosó, að vísu ekki til að fara á KFC, rölta síðan upp á Reykjafell og hjóla svo heim aftur.
Þau sem þarna sátu á hnökkunum voru:
Stebbi Twist
Krunka
Skemmst er frá því að segja að báðir aðilar náðu að skila sér lifandi heim aftur og hvorugur þeirra dó. En þetta var vel hressandi og mætti alveg gera aftur og meira af. Þ.e hjóla svona að hólum í nágrenninu og rölta síðan upp á þá og hjóla svo til baka.
En allavega fyrir áhugasama þá má skoða myndir frá kveldinu hér
Kv
Gönguhjóladeildin
þriðjudagur, júlí 24, 2012
Horft til vezturs
Sem betur fer er farið að styttast í næzta mánudag sem táknar bara eitt. Það þýðir lík að það er heldur ekki langt í helgi. Komandi helgi er víst fríhelgi hjá Litla Stebbalingnum svo það er kominn ferðahugur í kappann. Enda er það góð skemmtun að gista í tjaldi. Þar sem við hjónaleysin þurfum að vera í Dalasýzlu á messudag til að vera viðstödd jarðsetningu þá höfum við huga á því að halda veztur um helgina og amk enda í Dölunum á messudag.
Það er ekkert svo sem ákveðið ennþá hvernig helgin verður en margt kemur til greina. Það er hægt að fara beint veztur og slá upp tjaldi á Laugum í Sælingsdal. Kíkja í Guðrúnarlaug, rúnta um Fellsstönd og Skarðsstönd, rölta á Vaðalfjöll svo dæmi séu tekin.
Það kemur líka vel til greina að byrja á Snæfellsnesi, hugsanlega baða sig í Siggu og Stjána, finna einhvern hól og tölta á hann. Nú eða bara rúnta um svæðið og skoða eitthvað merkilegt. Ef einhverjir þarna úti hafa áhuga að koma með um helgina þá eru allar hugmyndir vel þegnar og að sjálfsögðu er allt skoðað.
Kv
Tjaldbúarnir
sunnudagur, júlí 22, 2012
Fagurt er fjallið
Þar sem nú er messudagur og ekki mikið eftir af honum er vel við hæfi að halda í hefðir og auglýsa næzta dagskrárlið í V.Í.N.-ræktinni. Nú komandi Týsdagskveld er það Fagradalsfjall sem hefur orðið fyrir valinu. Hól þessi er ekki langt frá Grindavík og ætlum við því að hætta okkur á Suðurnesin. Þessi ganga verður svona í lengra laginu fyrir kveldgöngu en það þarf ekkert að stöðva okkur.
Hittingur er við N1 í Gaflarabænum og við skulum aðeins vera í fyrra fallinu og því skal brottför verða kl:1800.
Kv
Göngudeildin
Hittingur er við N1 í Gaflarabænum og við skulum aðeins vera í fyrra fallinu og því skal brottför verða kl:1800.
Kv
Göngudeildin
laugardagur, júlí 21, 2012
29"er
Litli Stebbalingurinn fékk þá flugu í höfuðið ekki fyrir löngu síðan að reyna að smala saman í hjólheztareið á mánudag ca um og eftir hádegi. Sá sem þetta ritar er í vaktafríi komandi mánudag og ef einhverjir þarna úti eru komnir í sumarfrí og nenna aðeins að stíga á sveif eru allir að sjálfsögðu velkomnir með. Ýmisleg kemur svo sem til greina en líklegast er Svínaskarðið ansi heitt þessa stundina. Maggi á móti er vel til, að því gefnu að kauði verði kominn aftur í Gnarrinburg. Alla vega sjáum hvað verða vill.
Kv
Hjóladeildin
föstudagur, júlí 20, 2012
Þrjú tonn af sandi
Rétt eins og kom fram hér var ætlunin að ganga á Sandfell þessa vikuna. Það varð að lokum lendingin að í gærkveldi, fimmtudagskveld, var haldið á heimaslóðir Bubba til þess að sigra Sandfell í Kjós. Líkt og við var að búast var nú ekki fjölmennt eða öllu heldur tvímennt. Það voru:
Stebbi Twist
Hvergerðingurinn
Þrátt fyrir að við höfum ekki séð skóginn fyrir trjánum þá tókst okkur að komast á toppinn í svona dæmigerðu íslensku sumarveðri þar sem við biðum eftir skúrunum sem aldrei komu. En hvað um það þá má skoða myndir frá göngunni hér
Kv
Göngudeildin
miðvikudagur, júlí 18, 2012
Leirkallarnir
Eins og var auglýst eftir hér þá voru uppi hugmyndir um að viðra seglskýli sín um síðustu helgi. Eftir að hafa rýnt í fjöldan allan af veðurspám var afráðið að leggja suðurlandið undir fót. Einhverjir tóku forskot á sælunna og skellu sér á fimmtudeginum og ætluðu svo að hitta okkar. En þetta endaði sem þokkalega fjölmennri V.Í.N.-ferð. Sem er vel. En þau sem voru þarna á ferðinni voru:
Stebbi Twist
Krunka
á Polly
Maggi á Móti
Elín Rita
Andrés Þór
Birgir Björn
á Barbí og Ken
Hvergerðingurinn
Plástradrottingin með laumufarþega
á Brumma
Eftir þó nokkrar vangaveltur í Hnakkaville var afráðið að fara í Landsveit og slá upp tjöldum á Leirubakka. En Hvergerðingurinn og Plástradrottningin höfðu gert vettvangs-og rannsóknarferð á Tjaldstæðinu á Faxa og ekki litist nógu vel á. Berangurslegt og hvasst.
Alla vega þá var ekki hægt að kvarta yfir roki á Leirubakka er þangað var komið. Svo um kveldið var bara tekið þvi rólega, grillað burger, tekin skoðunarferð að lauginni og spilað Jenga. Auðvitað má ekki gleyma því að þeir Flubbabræður kíktu svo á okkur á álfugli stjórnað af þeim Yngri. Skemmtileg heimsókn það.
Á laugardeginum var bara byrjað á þvi að vinna í Tevu-farinu í rólegheitunum. Síðan þegar allir voru orðnir mettir var afráðið að skreppa í smá bíltúr að Skarfanesi með viðkomu hjá Þjófafoss. Við gjörðum þetta svo sem allt í rólegheitum, tókum okkur ágætis tíma við fossinn og ekki var svo hægt að taka eitthvað rallý á fólksbílunum á veginum í Skarfanes. Þegar í Skarfanes/Lambhaga var komið tók við hálfgerð paradís. Þetta var alveg jafn fallegt þarna og þegar litli Stebbalingurinn kom þarna síðast 8 ára pjakkur. Klárlega málið að koma þarna í útilegu við tækifæri með góðan mannskap með sér. Þarna var bara svo sem skoðað sig um, keyrðir einhverjir slóðar. Síðan við tóftirnr af Skarfanesbænum skildu leiðir því þar komum við að einhverjum læk sem fólkbíladeildinni leist ekki alveg nógu vel á en Maggi Brabra helt áfram. Við hin snérum við og heldum til baka þar sem við fundum okkur litla laut til að snæða smá nezti. Á bakaleiðinni var rennt við hjá Tröllkonuhlaupi og síðan bara rúllað aftur í tjaldbúðirnar þar sem leið að kveldmat. Um kveldið var síðan skellt á grillið, spjallað og endað svo í lauginni.
Messudagur rann upp og eftir mullersæfingar og morgunmessu var bara tjillað fram að kaffi þegar fólk var orðið klárt að koma sér af svæðinu. 1/3 af hópnum þurfti að fara í borg óttans en hin heldu áfram og gistu næztu nótt að Hamragörðum. Fólksbíladeildin fór í smá sunnudagsbíltúr og tók Heklubraut sem endar við Gunnarsholt og þar skildu leiðir
En einhverjir vilja rifja upp helgina nú eða skoða bara myndir þá má gjöra slíkt hér
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)