þriðjudagur, janúar 30, 2007

Þriðjudagur

Hæðin er yfir 2650metar yfir sjávarmáli og bjórinn er sérdeilis prýdilegur (er við öðru að búast) sem og blíðan.

Fylgist spennt með frekari fréttum.

mánudagur, janúar 29, 2007

Fréttir af útlandaförum

Hérna koma nokkrar fréttir af Austurríkisförum.

Mánudagur: ... setjum þetta bara fram á punktaformi.

Í dag lentu þeir á kostulegum leigubílstjóra frá FDH til Stanton.

Gústi skíðaði með þeim í morgun og var í ljótustu skóm í heimi.

Fyrsti bjór var kl 10:45

Annar fínt veður og færi

Sunnudagur.

Apréssking gott og Vignir týndi skíðapassanum

Fyrsti bjór skammarlega seint eða um kl 11:40 ... Bongóblída.

Kveðja

föstudagur, janúar 26, 2007

Upphitunarmyndnr:40 og 40 1/2 frá Austurríska/Ungverksakeizaradæminu




Þessir koma til með að sjá um stuðið á harmónikudazleik sem haldin verður í félagsheimili þeirra Stantoninga The Funky Chicken komandi mánudagskveld.

Þessi verður þar.Hvar verður þú???

fimmtudagur, janúar 25, 2007

Upphitunarmyndnr:39 frá Austurríska/Ungverskakeizaradæminu



Spurning dagsins er: Hvað er svo langt til Patreksfjarðar? Glæsileg verðlaun í boði þar sem heildarverðmæti vinninga er allt að 300.ísl.kr. Svo til mikils er að vinna.
Aðeins dregið úr réttum og jafnvel næstum því réttum svörum.

Kv
Skíðadeildin

Bókmenntahornið

Góðir lesendur, það er komið að lokakaflanum í hinni æsispennandi framhaldssögu, Sauðir í jeppa!




Þegar við skildum við vini okkar sauðina síðast virtist allt vera í besta lagi, svínin búin að losa jeppann úr drullunni og sauðirnir fagnandi bættu gengi. Sauðirnir héldu svo áfram og gáfu meira að segja einu svíninu far, en sauðurinn í bílstjórasætinu gleymdi alveg að stýra. Þetta gæti endað með ósköpum:



Ójú, það fór eins og sjá mátti fyrir, jeppinn ók á tré og sauðirnir flugu út úr honum. Sem betur fer virðist enginn hafa meiðst, en jeppinn er í skralli, svo sauðirnir fara að skæla:



En það þýðir ekkert að skæla bara, eins og allir sauðir vita, svo þeir tóku sig til og sópuðu upp jeppahræinu:



Og þannig lýkur sögunni, jeppi til sölu, selst ódýrt! Af sauðunum er annars það að frétta að þeir enduðu í neytendapakkningum síðar þetta haust.



Og hver er svo boðskapur sögunnar? Gaman væri ef lesendur tjáðu sig um það í athugasemdakerfinu. Annars dregur bókmenntarýnir VÍN sig í hlé í bili, hann er á leið í námsferð til Evrópu að kynna sér miðaldaskrípó. Góðar stundir.

mánudagur, janúar 22, 2007

Upphitunarmyndnr:36 frá Austurríska/Ungverskakeizaradæminu

Bókmenntahornið

Kæru lesendur, biðin er á enda. Það er komið að næsta kafla í hinni æspennandi framhaldssögu, Sauðir í jeppa:



Þegar við skildum við vini okkar sauðina síðast voru þeir heldur betur í vanda staddir, jeppinn fastur í forarpytti. En sauðirnir dóu þrátt fyrir allt ekki ráðalausir, heldur drógu fram spottann og reyndu að kippa jeppanum upp úr svaðinu:



En nei, allt kom fyrir ekki, sauðirnir höfðu einfaldlega ekki nægilegt afl til að losa jeppann. Ætli sauðirnir séu japanskir? Og hvað er nú til ráða?



Þegar neyðin er stærst er oft hjálpin næst: vinir þeirra svínin voru eins og þeirra er von og vísa svamlandi um í drullupollinum og voru meira en til í að veita aðstoð sína:



Og svínin fóru létt með að losa jeppann úr drullunni, sauðirnir fögnuðu, og gátu haldið för sinni áfram:



En er ævintýrum og óförum sauðanna lokið? Síðasti kafli framhaldssögunnar verður birtur næst, farið ekki langt!

föstudagur, janúar 19, 2007

(Flöskudags)Upphitunarmyndnr:33 frá Austurríska/Ungverskakeizaradæminu



Jáhá, svona lítur bjór út í rúmlega 3000.m.y.s.

Bókmenntahornið

Við höldum áfram þar sem frá var horfið í hinni æsispennandi framhaldssögu um ævintýri sauðanna í jeppanum. Þar sem við hættum síðast voru sauðirnir í vanda staddir, jeppinn stopp og ekki vitað hvað skyldi til bragðs taka. Hvað ætli gerist næst?



Nei, sauðirnir dóu sko alls ekki ráðalausir, heldur stukku út úr jeppanum, og bjuggu sig undir að ýta honum af stað:



Þeir ýttu og ýttu, og ýttu og ýttu, en gleymdu alveg að horfa fram fyrir sig á meðan. Þetta getur ekki endað vel:



Og jeppinn rann niður bröttu brekkuna, og festist ofan í miklu forarsvaði. Hvað í ósköpunum geta vinir okkar sauðirnir gert til að bjarga sér úr þessum vanda?

Fylgist spennt með, næsti kafli verður birtur innan tíðar!

fimmtudagur, janúar 18, 2007

Upphitunarmyndnr:32 frá Austurríska/Ungverskakeizaradæminu

Bókmenntahornið

Eins og tilkynnt var fyrir skömmu hefur bókmenntaráð VÍN ákveðið að gleðja lesendur með framhaldssögu. Í dag er birtur fyrsti hluti af þremur í hinu dramatíska verki:

Sauðir í jeppa


Saga okkar hefst þar sem nokkrir sauðir eru á ferð og rekast á einn félaga sinn, sem ekur jeppa:

Sauðurinn á jeppanum býður hinum far, og svo virðist sem þeir gleymi hinu fyrsta af S-unum fjórum (spenna, stinga, svissa, starta). Svo koma þeir að brattri brekku, þó ekki Bröttubrekku:

En æ, æ, jeppinn stoppar. Ætli hann sé bilaður? Nú er úr vöndu að ráða:

Æsispennandi framhaldið verður birt á allra næstu dögum.

Listinn

Þrátt fyrir að hér hafi tilkynning þess efnis, og reyndar hér líka, um að skráning fyrir FyrstuhelgaríjúlíárshátíðarÞórsmerkurferð væri formlega hafin þá hafa viðbrögð fólks eitthvað látið á sér standa. En hvað um það, má ekkert láta það stoppa sig og þá bætast vonandi fleiri við. En hér birtist fyrsti skráningarlistinn, vonandi af mörgum, fyrir FyrstuhelgaríjúlíárshátíðarÞórsmerkurferð 2007:

Fólkið:

Stebbi Twist
Adólf

Bílar:

Willy
Framsóknarflokkurinn

Kv
Undirbúningsnemd eftirlitsdeildar

miðvikudagur, janúar 17, 2007

laugardagur, janúar 13, 2007

Bláfjöll



Mið stúfur og Stóri stúfur brugðu undir sig betri fætinum í dag og skruppu í Bláfjöll. Þar var skinin voru límt undir skíðin og arkað upp síðan skíðað niður af mikili fimi . Gerðum við þetta tvisvar og fórum einu sinni upp Öxlina og hitt skiptið upp Gilið en niður Öxlina í bæði skiptin. Því miður er hvorugur það tæknivæddir að vera með myndasíðu á netinu svo ekki eru aðgengilegar myndir frá deginum

Fleira var það ekki að sinni

Kv
Göngudeildin

Upphitunarmyndnr:27 frá Austurríska/Ungverskakeizaradæminu

þriðjudagur, janúar 09, 2007

Agureyrish 2007



Eins og þeir vita sem fylgst hafa með er skíðavertíðin komin á fullt hjá VÍN-verjum, hófst formlega á aðventunni með skíðaferð norður yfir heiðar, Þorvaldur og Dýrleif fögnuðu nýju ári í Madonna og eftir ekki mikið meira en 18 daga munu vitleysingarnir þrír halda utan til Týról og gera þar einhvern óskunda. Svo er aldrei að vita nema það opni einhvern tímann í Bláfjöllum, furðulegri hlutir hafa gerst. Og nú er loks, samkvæmt þessari heimild, komin staðfesting á dagsetningu Telemarkhelgarinnar, en líkt og fyrri ár stefnir VÍN á að fjölmenna norður þá helgina með það yfirlýsta markmið að venju að benda þessu liði á hve bjánalegt sé að hafa lausan hælinn. Sumsé, takið 15.-18. mars frá í fílófaxinu, eða hvað svo sem menn nota nú til dags, því enginn sem ekki er löglega afsakaður (t.d. látinn, í dauðadái eða búinn að missa báðar lappir, önnur löppin er ekki nóg) færi að sýna af sér þann aumingjaskap og heigulshátt að skrópa á þessa stórhátíð. Og, já, kannski að húsnæðisnefndin fari að vinna í að redda gistingu, og jafnvel ekki verra að þeir sem hafi hug á þeirri gistingu panti sitt pláss sem fyrst því plássin eru fljót að fyllast og enginn er annars bróðir í leik og aðeins dregið úr seldum miðum. Svo mörg voru þau orð að sinni, veriði sæl og blessuð!

Upphitunarmyndnr:23 frá Austurríska/Ungverskakeizaradæminu

mánudagur, janúar 08, 2007

Upphitunarmyndnr:22 frá Austurríska/Ungverskakeizaradæminu

Meira af flíkum!

Í tengslum við kaup okkar á innsta lags peysum hafa borist fyrirspurnir um hvort hægt sé að fá "gömlu" peysuna á tilboðsverði (Tindur tæknilegur jakki, karla eða kvenna). Ágætti væri að fá hugmynd um hversu marga slíka jakka væri að ræða eða hvort þeir séu yfir höfuð fleiri en einn. Ég hvet því alla sem hafa áhuga á eignast slíka flík að láta vita af sér með því að brúka athugasemdakerfið.

sunnudagur, janúar 07, 2007

Upphitunarmyndnr:21 frá Austurríska/Ungverskakeizaradæminu

Ganga upp í móti




Göngudeildin fór í sína fyrstu ferð á árinu í dag. Að þessu sinni var Vífilsfellið toppað.
Það voru þrjú ofurmenni sem lögðu í för þessa og einn bíll. Eftirfarandi aðilar voru:

Stebbi Twist, Maggi Brabra og Jarlaskáldið og sá Jenson um koma mönnum til og frá.

Rétt eins sjá má, hér að ofan, þá var Arnór með í för sem táknar það að hirðljósmyndarinn var á svæðinu. Dugnaðarskáldið er að búinn að koma myndum sínum á alnetið. Hægt er að skoða myndirnar hér.

Góðar stundir
Göngudeildin

laugardagur, janúar 06, 2007

Jólin kveðja



Það var farið í dag, loksins, og kíkt á strandið. Eingöngu fóru tveir sómapiltar í þessa för en það voru:

VJ og Stebbi Twist á fararskjótanum Hispa.

Fínasti bíltúr í fínu veðri þó svo að við sáum enga álfa flytja nú á sjálfum á þréttandanum . Eftir strandskoðun var laugardagurinn að sjálfsögðu nýttur til laugaferða til að lauga sig á laugardegi. Eftir sundsprett var pulsað sig upp og endað með að rúnta aðeins um Reykjnestána.

Upphitunarmyndnr:20 frá Austurríska/Ungverskakeizaradæminu

fimmtudagur, janúar 04, 2007

Upphitunarmyndnr:18 frá Austurríska/Ungverskakeizaradæminu



Það er heldur varla úr vegi að benda fólki á að Tiltektar-Toggi er búinn að setja á alnetið myndir frá reisu sinni til Madonna Di Campiglio nú um jól og áramót

Peysur peysur og meiri peysur

Sæl.

Fatanefnd VÍN hefur sko ekki setið og slappað af yfir jólin heldur staðin í ströngum samningarviðræðum við Cintamani.

Niðurstöður viðræðna eru eftirfarandi:

Þetta er allt saman til og er verðið á peysunum svona:

Peysur Sjá
Sindri = 5390.-
Már = 4790.-
Svava = 5390.-

Buxur
Aron = 4790.-
Anna = 4190.-

Hvað finnst ykkur, þetta eða 66gráður????

miðvikudagur, janúar 03, 2007