Published fimmtudagur, janúar 26, 2012 by Stebbi Twist.
Já, já það hér með viðurkennist að skráningardeildin skeit illilega í rjóman og birti ekki sinn vikulega skráningarlista í gær. En vonar að fólk hafi hjarta í sér til fyrirgefa þessa sólarhringsseinkun.
Það er allt við það sama frá síðustu viku og því ekkert títt frá
austurvígstöðvunum. Má segja að það sé því svigrúm til bætinga. En komum okkur að þessu:
Aðdáendur
HG:
Stebbi TwistEldri BróðirinnKrunkaBergmannFrúinErfðaprinsinnGosiDanni DjúsBilliNotendur takmarkaðra orkulinda jarðar:
WillyGullvagninnAllt við það sama. Sá kannski segja að engar fréttir séu góðar fréttir. Að svo komnu máli þakkar skráningardeildin fyrir sig þessa vikuna
kv
Skráningardeildin
|
Published miðvikudagur, janúar 18, 2012 by Stebbi Twist.
Já gott fólk þá er komið að því að birta opinberlega
skráningarlista nr:3 fyrir hina árlegu
Helgi sem verður í ár
Við skulum ekkert vera hafa þetta einhverja langloku og komum okkur á mál málanna.
Askur og Embla:
Stebbi TwistEldri BróðirinnKrunkaBergmannFrúinErfðaprinsinnGosiDanni DjúsBilliSleipnir:
WillyGullvagninnJæja það hefur fjölgað um einn og er það vel. Sígandi lukka eins og tjéllingin sagði það eitt sinn. Höfum fulla trú á því að öll fyrri met verði slegin þetta árið sem öll hinn
Kv
Skráningardeildin
|
Published þriðjudagur, janúar 17, 2012 by Stebbi Twist.

Nú um liðna helgi fór
Litli Stebbalingurinn með
nillahópinn sinn í
Bláfjöll. Þar var ætlunin að arka á gönguskíðum, gista í snjóhúsi ásamt því að vera með snjóflóðapælingar leita af ýlum, grafa prófíla o.þ.h. Þarna með í för voru
tveir gildir limir en það voru:
Stebbi TwistKrunkaÁ Sandskeið var rútan yfirgefin á flöskudagskveldinu og stígið á gönguskíðin síðan haldið sem leið lá upp í Bláfjöll í öskrandi rigningu og góðu roki. Eftir 5,5 klst var komið upp í
Bláfjöll og allir vel blautir innað beini var bankað upp hjá
Ársælingum í
Eldborgargili og óskað húsaskjóls. Veittu þeir það okkur.
Laugardagurinn fór í ýlaleit og endað svo á því að grafa snjóhús.
Á messudag var haldið heim eftir að fólk hafði prufað snjóhúsin sín og á leiðinni var grafinn snjóflóðaprófíll. Vel gekk svo sem að komast heim nema svo bilaði rútan á heimleiðinni og þurftum við að skifta um rútu á leiðinni. En hvað um það
Fyrir áhugasama þá má skoða myndir
hér. Reyndar eru fyrstu myndirnir frá því við
hjónaleysin skuppum um daginn í Fossvogsdal á gönguskíði
|
Published miðvikudagur, janúar 11, 2012 by Stebbi Twist.
Nú vika tvo á því herrans ári 2012 er víst staðreynd og það táknar bara eitt. Jú viti menn það er auðvitað
skráningarlistinn fyrir
Helgina. Það byrjuðu kröftuglega skráningarnar og er það vel en það hefur aðeins hægst á þeim en það er svo sem eðlilegt í ljósi sögunnar. En vindum okkur bara í þetta:
Eru álfar kannski menn?
Stebbi TwistEldri BróðirinnKrunkaBergmannFrúinErfðaprinsinnGosiDanni DjúsSkattastofn:
WillyGullvagninnRétt eins og sjá má þá er ekki mikið að frétta af austurvígstöðunum en fylgist spennt með til sjá hvaða vitleysa kemur næzt
Kv
Skráningardeildin
|
Published fimmtudagur, janúar 05, 2012 by Stebbi Twist.

Nú á
nýársdag brá
Litli Stebbalignurinn ásamt
Eldri Bróðrinum sér á skíði í
Bláfjöll. Reyndar væri miklu réttara að tala um að
Stebbalingurinn hafi fengið að fara með þeim
Eldri en hvað um það. Skemmtilegt er að segja frá því að hann Óli nýtti ferðina til að gerast áhættufjárfestir. Það er nú samt skemmst frá því að segja að ekki var nú mikið skíðað þennan fyrsta dag ársins. Um leið og við komum byrjaði að snjóa og skyggni varð frekar sjaldséð svo það var bara ein ferð niður öxlina og ein frá gömlu Borgarlyfunni og yfir að barnalytfunum. En engu að síður förum við og höfðum alveg gaman af. Góð byrjun á nýju ári. Annars eru myndir
hérKv
Skíðadeildin
|
Published miðvikudagur, janúar 04, 2012 by Stebbi Twist.
Já börnin mín stór og smá. Þá er komið að því, hosen, dosen grosen stunden eða stóru stundinni.
Fyrsti skráningarlistin fyrir
fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð á nýju ári er birtur á
lýðnetinu. Þetta byrjar alveg prýðilega í skráninginum ekki er um það að efast að flestir eru komnir með hugan inneftir í
Bása. Ætli það sé ekki farið að kveikna smá neizti með að huga að
undirbúnings-og
eftirlitsferð innúr. Hvenær svo sem það skyldi gerast. En hvað um það. Vindum okkur í málið.
Hold og blóð:
Stebbi TwistEldri BróðirinnKrunkaBergmannFrúinErfðaprinsinnGosiDanni DjúsMálmur og olía:
WillyGullvagninnSvo er bara að sjá hvað gerist nesta hálfa árið eða svo. En þetta hlýtur að leggjast vel í fólk
Kv
Skráningardeildin
|
Published þriðjudagur, janúar 03, 2012 by Stebbi Twist.

Líkt og um síðustu
jól þá fórum við
hjónaleysin í bústað yfir jólin. Að þessu sinni var haldið á
norðurland í ríki skagfirska sveiflukóngsins
Geirmundar Valtýssonar og haldið til í
Varmahlíð.
Skíðum var hlaðið á toppinn á
Polly og síðan
jólatré þar ofan á.
Griswolds. Á aðfangadag var svo skroppið í
smágönguskíðahring um þorpið til að eiga aðeins fyrir matnum. Á
jóladag var líka tekin stutt gönguskíðasyrpa sem endaði næztum því í sjálfheldu svo var auðvitað endað í pottinum eftir bæði skiptin.
Annan í jólum var svo ætlunin að kíkja í
Tindastól og renna sér þar. Fyrsta athugun leiddi í ljós að þar var opið en þegar átti svo leggja af stað þanngað var búið að loka. En það var ekki nóg því
snjóflóð hafði líka lokað veginum til Siglufjarðar svo ekki var neitt úr skíðaiðkun þann daginn. Endaði bara með bíltúr svo ekki er hægt að gefa skýrzlu um aðstæður í Tindastól en það bíður bara vonandi þar til síðar í vetur
En ef einhver vil skoða hvernig má iðka þarna gönguskíði má sjá myndir
hér
|