sunnudagur, mars 30, 2003

Jæja þá er fyrsti jeppatúrinn á hinum mikla Hilux búinn. Farið var í Þórsmörk með Elínu og Runólfi sem var á sínum eðal bíl ... Hilux. Ferðin inneftir tókst mjög vel og kom það skemmtilega á óvart hvað það var mikill snjór þarna. Þegar inn í Bása var komið var sest að snæðingi og fenginn sér þessi eðal samlóka. Eftir mat var farið í alvöru jeppó inn í Strákagil þar sem tekið var vel á jeppanum. Haldið var þaðan heim á leið með viðkomu í Breiðiholtinu þar sem Heiðrún beið með nýbakaða köku handa þreyttum ferðalöngum og þökkum við henni fyrir það. Frábær ferð í alla staði........

þriðjudagur, mars 25, 2003

Er ekki stemmning fyrir því að kíkja eitthvað um helgina ??????? Bara eitthvað í stuttan bíltúr. Fara á föstudagskveldi og koma á laugardegi, eða bara hvernig sem menn vilja hafa þetta........

sunnudagur, mars 23, 2003

Miklar framfarir hafa orðið í myndasafni okkar VÍN-verja á netinu undanfarna daga. Ber þar helst að nefna myndasíðuna hans Togga, þar sem hann er búinn að setja inn góðan slatta af myndum sem teknar hafa verið í hinum ýmsu ferðum síðastliðin ár. Jafnframt má benda á myndasíðuna hans Arnórs þar sem finna má nokkrar myndir frá Ítalíu og Akureyri. Auk þess má finna slatta af myndum á opinberu VÍN myndasíðunni. Án efa eiga fleiri myndir eftir að bætast í safnið.
Lifið heil.

miðvikudagur, mars 19, 2003

Það hefur enginn gert sig líklegan til að skrifa pistil um aðalfundarstörf VÍN síðastliða helgi á Akureyri þannig að ég tek að mér skríbentastörfin í þetta skipti. Eins og allir vita er minnið mitt kennt við gullfisk þannig að þið hinir megið bæta við eftir þörfum.
Herlegheitin hófust þegar hersingin kom saman (Viffi, Alda, Blöndahlinn, Arnór, Eyfi, Gústi, Stebbi Twist ásamt húsráðanda) í Heiðarásnum (amk. flestir, sumir sáu sér ekki fært að mæta vegna tímaskorts og ruku beint af stað (Toggi, Dýrleif, Elín og Maggi Andrésar)) um 7 leytið á föstudagskveldi. Þess er skemmst að geta að ferðin norður tókst stóráfallalaust ef undan eru talin nokkur pissustopp og aðrar nauðþurftir og vorum við komin á Sjallann skömmu eftir miðnætti. Þar hófst drykkja sem ekki á sér hliðstæðu á fimmtudagskvöldi á Akureyri og er mér sjálfum fyrirmunað að átta mig á því hvað fram fór utan almenn drykkjulæti og ölvun.
Enda mættu timburmennirnir daginn eftir og kom Alka-Seltzerinn að góðum notum! Eftir morgunmat frá Kristjánsbakaríi (kærar þakkir Viffi) hófst almenn skíðaiðkun og reyndist þessi dagur hinn allra sæmilegasti þó sumir þyrftu frá að hverfa lítillega fyrr. Skíðaiðkun fór nær eingöngu fram í Strompinum þar sem snjór á neðri hluta skíðasvæðisins er með allra minnsta móti. Sund og pizzur komu að góðum notum en djammið var aðalatriðið. Partýið hjá okkur var fínt að þessu sinni þó það hafi farið frekar hægt af stað. Til leiks voru mættir kempur á borð við Stymma steinolíu, Gumma VanGilsíkók, Bjarna og fleiri og fleiri. Því næst var bærinn málaður blár.
Þynnka laugardagsins var ekki eins slæm og sú á föstudeginum þannig að hann var vel nýttur til skíðaiðkana auk þess sem Ísalp sá fyrir skemmtiatriðum í fjallinu. Jafnframt var sopinn teigaður og kunnum við Stymma steinolíu, Gumma VanGilsíkók og Dodda tjaldbúa kærar þakkir fyrir þeirra framlag til þess. Máltíðin á Greifanum var í fjörugra lagi. Ber það að þakka þjónum kvöldsins sem færðu Arnóri litabók, liti og ýmislegt fleira að gjöf. Vakti þetta mikla kátínu. Um kvöldið fóru fram partýhöld og djamm og er skemmst að minnast að ekki er neins að minnast.
Á sunnudeginum skiptust leiðir, sumir fóru í fjallið, aðrir í afmæli, aðrir drifu sig heim og enn aðrir hringdu um víðan völl til að reyna að redda sér fari heim (þess ber að geta að þær hringingar voru án árangurs). Það fór þó svo að lokum að mannskapurinn komst heim heill að húfi, þeir síðustu um 9 leytið á sunnudagskveldinu.
Þetta kallar VÍN venjuleg aðalfundarstörf.
Lifið heil.

miðvikudagur, mars 12, 2003

Mér var að berast það til eyrna að Magnús Andrésarson væri orðinn stoltur jeppaeigandi, við óskum honum að sjálfsögðu til hamingju með það.
Ég var að skoða myndasafn Hverfisbarsins um daginn þegar ég rakst á þessa mynd sem sýnir bjórglös. Ef betur er rýnt í myndina má sjá tvo gaura leynast á bak við bjórglösin en ég fæ ekki betur séð en að þar séu á ferðinni hvorki meiri menn né minni (einn mikill og annar minni) en ég og Blöndahlinn. Ekki minnist ég þess að hafa orðið vitni af myndatöku þessari en það leynir sér ekki að við skemmtum okkur konunglega.
Lifið í blautu brauði en ekki þurru!
Djöfulsins rigning.
Jæja það er komið á hreint hverjir verða á sjallanum á laugardaginn 15 mars.

Stuðmenn

þriðjudagur, mars 11, 2003

Jú halló aðdáandi Vinafélags Íslenskrar Náttúru (helst kvenkyns á aldrinum 18-22 ára) en ef þú kannt að drekka bjór og segja góðan brandara þá sleppir þú.
Ef þú lesandi góður hefur ekki tekið eftir því skal þér bent kurteisislega á það að degi er tekið að halla hinn 11. mars 2003. Það þýðir bara eitt. Það mektarfólk innan VÍN sem er að fara norður nánar tiltekið Akureyrish (ekki þú ligga ligga lái) þarf aðeins að vakna grámyglað og ógeðslega súrt tvisvar sinnum áður en það kemst í gleðina og glauminn sem sannarlega mun ríkja norðan heiða um næstu helgi. Nú þetta þýðir að eftir aðeins 48-50 klst (fer allt eftir því hvenær keyrt verður í gegnum Hvalfjarðargöngin) förum við og skemmtum af okkur hausinn en ekki þú. Við erum þess fullviss að þú, sem ert ekki að fara, eigir eftir að eiga notalega helgi við að slappa af um helgina. Viljum við því benda þér á nokkur "highlights" sem vert er að hafa í huga komandi helgi. Byrjum á byrjuninn. Fimmtudagur (þ.e. þegar við erum burra norður) er gott að smella sér í miðbæinn og fá sér bjór og ímynda sér að þú sért einn af þeim sem ekki séu að keyra norður og eru orðnir fullir um borð í bílnum. Mælum við með að þú smellir þér á eina verstu búllu bæjarinn Glaumbar þar sem þú getur fengið þér Corona á spottprís og gónt á fólk sem hefur greindarvísitölu á við kött og er með aflitað hár!!!! Ekki slæm skemmtun það. Ef þú ert heppinn getur þú örugglega séð eitthvert "urrandi heimskt" vöðvastykkið berja líftóruna úr einhverjum vesalingnum bara af því vesalingurinn kann stafrófið en ekki kjötstykkið. Kjötstykkin eiga það víst til að ruglast ansi oft á o og ö. Líklegasta ástæða þess er að kjötstykkjunum hættir til að svara hverri einustu spurningu með: ......hvað heitirðu.........öööööööööö..... þannig að eins og þið sjáið það getur verið svolítið erfitt að segja o í stað ö þegar þér er jafnkært að segja ö og að fá þér að míga
Nú næsta dag (þ.e fyrstu skíðadagur okkar á Akureyrish vonandi höfum við náð fyrir 01:00 norður í bjór á einhverjum búllum bæjarins) er ekki slæmt að vakna súr og svekktur yfir því að vera ekki komin norður eins og við.......ligga ligga lái!!! og mætta í vinnuna súr og sár yfir því að við séum að skíða í púðri og að fá okkur bjór. Nú þegar rökkva tekur er algjör thriller í sjónvarpi allra landsmanna. Það ku vera Disneymynd númer 359 í röðinn (fengu 599 myndir á spottprís) og má alls ekki gleyma því að taka upp. Mér skilst að gæðamyndin Tómasína frá 1963 sé á skjánum. Ef þú ert ekki enn orðinn spennt(ur) þá er umfjöllunin eitthvað á þessa leið:
Í ævintýramyndinni Tómasínu (The Three Lives of Thomasina), sem frá 1963, segir frá ungri skoskri stúlku og kettinum hennar, henni Tómasínu. Pabbi stúlkunnar er dýralæknir og ekkjumaður en svo óheppilega vill til að að Tómasína virðist deyja af hans völdum. Samband feðginanna stirðnar mjög við það en það lagast aftur þegar Tómasína lifnar við með dularfullum hætti þar sem undurfögur norn kemur við sögu. Leikstjóri er Don Chaffey og aðalhlutverk leika Patrick McGoohan, Susan Hampshire, Laurence Naismith og Jean Anderson........ÞETTA ER NÁTTÚRULEGA ALGJÖR SPRENGJA!!!!!!!!!
Nú svo þegar þú ert að fara sofa eftir að fengið þér flóaða mjólk því þér er hálfillt í maganum yfir því að vera ekki með okkur norður á Akureyrish (hvað ætli ég sé búinn að segja norður á Akureyrish oft????) þá skaltu halda símanum opnum því okkur hættir til að hringja í fólk fullir og hvað er skemmtilegra en að hlusta á drafandi fólk sem veit hvorki heim né annann vegna drykkju, segja þér hvað er gaman .......jú ágæti lesandi ....einmitt norður á Akureyrish. Til að halda vöku þinni mæli ég með dagskrá sjónvarpsins sem er eftirfarandi:
21:50 Af fingrum fram
Gunnar Þórðarson, gítarleikari og lagasmiður og einn dáðasti dægurtónlistarmaður þjóðarinnar undanfarna áratugi er gestur Jóns Ólafssonar í þættinum Af fingrum fram í kvöld. Gunnar var í hljómsveitunum Trúbrotum og Hljómum og hefur lagt gjörva hönd á margt það athyglisverðasta sem gert hefur verið í íslenskri popptónlist á liðnum árum. Þeir Jón eiga létt spjall um lífið og tónlistina og taka svo saman lagið í lok þáttarins. Dagskrárgerð er í höndum Jóns Egils Bergþórssonar.

22:45 Meyjamissir
Í bandarísku bíómyndinni Meyjamissi (The Virgin Suicides), sem var gerð árið 2000, er sagt frá fimm dularfullum systrum, Lisbon-systrunum, sem áttu heima í úthverfi bandarískrar stórborgar á áttunda áratugnum. Sagan þeirra er rakin með frásögnum manna sem hrifust af þeim á unglingsárunum og velta fyrir sér afdrifum þeirra 20 árum seinna. Leikstjóri er Sofia Coppola og meðal leikenda eru James Woods, Kathleen Turner, Kirsten Dunst, Josh Hartnett, Michael Paré, Scott Glenn, Danny DeVito, A.J. Cook, Hanna R. Hall, Leslie Hayman og Chelse Swain.

00:20 Jefferson í París
Kvikmynd frá 1995 um Thomas Jefferson sem var sendiherra Bandaríkjanna í París upp úr 1780 og kvennamál hans. Kvikmyndaskoðun telur myndina ekki hæfa fólki yngra en 12 ára. Leikstjóri: James Ivory. Aðalhlutverk: Nick Nolte, Greta Scacchi, Thandie Newton og Gwyneth Paltrow. e.

02:35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok

'Eg skil bara ekkert í okkur að fara norður.

Nú laugardagur rennur upp bjartur og fagur í mikilli þynnku hjá okkur.....norður á Akureyrish (í skipti númer 1352) því við elduðum góðan mat og drukkum gott vín með….já eða bjór en þú hress og kátur af því að þú fékkst þér flóaða mjólk í gærkveldi.
Við á skíðum en þú að hjálpa mömmu þinni við uppvaskið og skúringar og ekki gleyma þýska boltanum. Hvað er meira hressandi en að horfa á leiðinlegast fótbolta í heimi undir styrkri stjórn Lalla Gúmm og Gumma Hreiðars “þykjustu þýskuhreims” þar sem liðið í bláu búningunum keppir við liðið í grænu…..nöfnin á þessum liðum er eitthvað á reiki þar sem öllum er skítsama hvaða aular eru að spila
Ekki má heldur gleyma heldur þeim stórviðburði að HM innanhúss í frjálsum er í beinni og það frá Birmingham hvorki meira nér minna. Enn og aftur skil ég ekkert í því að við séum að fara “norður á Akureyrish” Þar eru tveir keppendur Jón Arnar sem er alltaf að sækja í sig veðrirð og Þórey “alltaf í skugga Völu” Edda Elísdóttir ekki slæmt það. En ef þú ert ekki með Stöð 2 sem ég þó vona þín vegna annars gerir þú gat á höfuðið á þér með hjálp haglabyssu, af leiðindum þá er dagskráin eitthvað á þessa leið ……….mæli sérstaklega með Malla mús og honum Engilbert í morgunsjónvarpinu :
09:00 Morgunstundin okkar

09:02 Mummi bumba (11:65)

09:07 Bingur (11:13)

09:17 Malla mús (51:55)

09:25 Engilbert (4:26)

09:38 Albertína ballerína (7:26)

10:00 Babar (66:63)

10:25 Viltu læra íslensku? (10:22)
Íslenskukennsla fyrir útlendinga. Dagskrárgerð: Jón Hermannsson. e.

10:45 Mósaík
Endursýndur þáttur frá þriðjudegi.

11:20 Geimskipið Enterprise (19:26)
Bandarískur ævintýramyndaflokkur. Aðalhlutverk: Scott Bakula, John Billingsley, Jolene Blalock, Dominic Keating, Anthony Montgomery, Linda Park, Connor Trinneer og Vaughn Armstrong. e.

12:05 HM í frjálsum íþróttum innan húss
Sjónvarpið sýnir beint frá Heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem haldið er í Birmingham. Tveir Íslendingar keppa á mótinu, Jón Arnar Magnússon í sjöþraut, og Þórey Edda Elísdóttir í stangarstökki. Jón Arnar hefur átt ágætu gengi að fagna undanfarna mánuði og á ágæta möguleika. Hann fékk silfurverðlaun á síðasta heimsmeistaramóti innanhúss, í Lissabon fyrir tveimur árum. Það er besta afrek hans á löngum íþróttaferli. Þórey Edda Elísdóttir hefur sótt sig mjög síðastliðna mánuði og gæti blandað sér í baráttu hinna bestu. Stangarstökkskeppni kvenna í Birmingham er beðið með mikilli eftrirvæntingu. Þar mætast Evrópumeistarinn Svetlana Feofanova frá Rússlandi og heims- og ólympíumeistarinn Stacy Dragila frá Bandaríkjunum sem hafa bitist um heimsmet innan og utanhúss síðustu misseri.

14:25 Þýski fótboltinn
Bein útsending frá leik Hamburger SV og Schalke 04 í þýsku úrvalsdeildinni.

16:25 Táknmálsfréttir

16:35 HM í frjálsum íþróttum innan húss
Bein útsending frá Birmingham.

18:54 Lottó

19:00 Fréttir, íþróttir og veður

19:40 Laugardagskvöld með Gísla Marteini
Gísli Marteinn Baldursson fær til sín gesti sem spjalla um líf sitt og tilveruna, og tónlistarmenn leika af fingrum fram. Stjórn upptöku: Egill Eðvarðsson.

20:25 Spaugstofan
Karl Ágúst, Pálmi, Randver, Sigurður og Örn túlka atburði líðandi stundar eins og þeim einum er lagið. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.

20:55 Á bólakaf
Kelsey Grammer, betur þekktur sem Frasier, er í aðalhlutverki í bandarísku gamanmyndinni Á bólakaf (Down Periscope) sem er frá 1996. Þar segir frá sjóliðsforingjanum Dodge sem er falið að stjórna gömlum díselknúnum kafbáti. Katbáturinn er farinn að láta á sjá og í áhöfn hans eru algjörir rugludallar en Dodge þarf að reyna að hafa stjórn á þeim í því erfiða verkefni sem þeir eiga fyrir höndum. Leikstjóri er David S. Ward og í helstu hlutverkum eru, auk Kelseys Grammers, Lauren Holly, Rob Schneider, Harry Dean Stanton, Bruce Dern og William H. Macy.

22:30 Beck - Hefndarhugur
Sjónvarpið sýnir í kvöld sænska sakamálamynd frá 2001 þar sem lögreglumaðurinn Martin Beck rannsakar morð á tveimur starfsbræðrum sínum. Leikstjóri er Kjell Sundvall og aðalhlutverk leika Peter Haber, Mikael Persbrandt, Sophie Tolstoy, Marie Göranzon, Per Morberg og Ingvar Hirdwall.

00:00 Krossgötur
Bandarísk bíómynd frá 1994 um mann sem þarf að velja á milli konu sinnar til 16 ára og nýju ástkonunnar sinnar. Leikstjóri: Mark Rydell. Aðalhlutverk: Richard Gere, Sharon Stone, Lolita Davidovich og Martin Landau. e.

01:35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok



Nú þegar klukkan er langt gengin í eitt eftir miðnætti og við löngu orðin pakksödd og drukkin eftir góðan skíðadag og fínan málsverð á góðu veitingahúsi máttu aftur búast við símhringingu frá okkur. Þetta verður þó í síðasta sinn sem við hringjum því við komum heim á morgun en ekki skaltu gleyma því að ef þú ert heppinn þá getur þú farið á sunnudeginum í kirkju og verið við messu og aftansöng….slepptu prumpinu.

Nú í þessum bullpistli mínum hef ég tæpt á því helsta sem þú getur gert þér til dundur lesandi góður á meðan við skemmtum okkur í síðasta skipti “norður á Akureyrish”


Bið þig vel að lifa og eiga góða helgi en ég get lofað þér því að hún verður ekki jafn góð og okkar


Góðar stundir

sunnudagur, mars 09, 2003

Bara til að herða enn á greddunni fyrir menningartúrinn norður á Akureyrish þá fékk ansi skemmtilegt sms frá sérlegum fréttaritara VÍN í höfuðstað Norðurlands, henni
Helgu frænku sem hýsti nokkra meðlimi VÍN fyrr í vetur þegar snjóalög og bjórbúllur voru teknar út fyrir hátíðina sem senn fer hönd og innihaldið er eitthvað á þessa leið (með smá kryddi frá mér):
"geðveik púðursnjókoma og brjálað skíðafæri. Kveðja úr leikfangalandi" og þess skal getið að ég er ekki að krydda mikið
Svo til að menn hemji slefið ekki þá á víst að vera snjókoma fram eftir vikunni og svo breytileg átt.....fuss og svei hvað þetta
verður gaman!!!!

Góðar stundir

P.s. hún nefndi það líka, eftir að ég tjáði henni að henn væri boðið í partý hjá okkur um helgina, að það væri fínt þar sem hún hefði nánast ekki smakkað það alveg síðan hún fór norður NEMA ÞEGAR VIÐ VORUM Í HEIMSÓKN FYRR Í VETUR ................ ég held að það sér reyndar bara tilviljun...........eða ekki!!!!!!

laugardagur, mars 08, 2003

Var að spjalla við Frosta Eyjamann. Hann tjáði mér að við værum komin á biðlista á gistiheimili fyrir Þjóðhátíð. Hann gekk í persónulegar ábyrgðir fyrir hópnum og var tjáð að líklega yrði hliðrað til fyrir okkur. Það var pantað fyrir 6-8.manns. Þetta kemur svo allt betur í ljós í júní þegar verður farið að ganga á pantarnir fólks. Engu að síður taldi Frosti að við værum þokkalega öryggir með gistingu. Þetta gistiheimili er víst á Kirkjuvegi eða Kirkjubraut, enda skiptir það ekki höfuðmáli. Svo er bara núna að biðja veðurbænir ekki veitir af eftir reynslu síðustu Þjóðhátíðar

fimmtudagur, mars 06, 2003

Ef mér reiknast rétt eru EKKI NEMA 7 DAGAR í skíða og menningarferð til AKUREYRISH.

Sem er ekkert nema S N I L L D :o)

miðvikudagur, mars 05, 2003

jesús pétur í allan vetur hvað það verður gaman þarna eftir 10 daga.
Mönnum er hollast að fara troða sér í skotgrafirnar, vopnast eggvopnum, skriðdrekum, vistum til 399 daga
því við erum að fara mæta þarna í hópum.
Okkur verður trillað inn á Akureyrish í bílförmum

Nú skulum við fara gera okkur greiða og fara láta okkur hlakka til og hía í skrílinn sem ekki þorir að mæta
þessa ágætu helgi

Góðar stundir
Ég flyt hér með þau tíðindi er mér bárust til eyrna í gærkvöldi. Það er ástæða til að kætast yfir því að Vífill (annar meðlimur hins geysiöfluga liðs V-Power) hefur fengið íbúð á Akureyri helgina 13.-16. mars, nánar tiltekið sömu helgi og við höfum sett stefnu okkar þangað. Íbúðin er þeim kostum búin að vera einungis steinsnar frá þeirri íbúð sem Gústi var búinn að taka á leigu, einungis ein íbúð á milli (greyið íbúarnir þar!). Þetta þýðir að við getum eyrnamerkt eina íbúð fyrir bólfarir og aðra fyrir hamfarir sem þýðir að letingjar geta farið að sofa þó aðrir djammi.
Góðar stundir.
Ég fór alveg í snilldar kvöldgönguferð í gær með flubbunum. Það var ekið gegnum Hveragerði að Hengladalaá innan hesthúsanna í Ölfusdal. Gengið var síðan upp Rjúpnabrekkur og um Reykjadali að Klambragili. Þegar inn í dalinn var komið var smellt sér í laugina. Sem var alveg ótrúlega góð, ætlaði valla að trúa hvursu góð laugin var þarna á þessum ársstíma. Heldur spilltu nú ekki fyrir norðurljósin sem sýndu sig á meðan við vorum lauginni, þau mættu þarna í öllum regnboganslitum........alveg snilld.

Þannig ég legg til að næst þegar VÍN-liðum langar að koma sér í bað og ganga aðeins á undan og eftir, þá mæli ég með þessu.