þriðjudagur, janúar 22, 2013

opnum skálafell

Smellti mér með Vodafone í fyrstu fjallaskíða ferð þessa árs. Farið var kl 09 á laugardagsmorgni. Við KFC var fullt af roki og smá skvettur af slyddu. En um leið og við vorum mætt í mosfellsdalinn birti til .. og sást þá í Skálafellið. Tók um 30m að ganga upp skíðabrekkuna og 10 mín á uppá topp. Þegar upp var komið tók á móti okkur þessi fína vöfflulykt .. Sem sagt á toppnum vöfflur, rjómi og heitt kakó með rjóma, ekki amalegt það. Svo stutt skoðunarferð um húsið.
Hjálmnum smellt á höfuðið og skíða niður í mismiklum snjó. Þræl fín ferð .. nú bara bíða eftir næstu PS. Hérna eru fleirri myndir .. .

3 ummæli:

  1. Gaman að þessu. Gott að vita til þess að skíðadeildin er á lífi

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus9:12 f.h.

    Já og að sjálfsögðu er notað töppó undir vöfludeigið ;)
    kv.Plástradrotningin

    SvaraEyða
  3. Hr:Tuppi stendur fyrir sínu

    SvaraEyða

Talið!