mánudagur, ágúst 31, 2015
Í brúðhlaupi: Flöskudagur
Nú einn flöskudag í júlímánúði giftu tveir Flubba sig. Einhverjir hjerna kannast nú við Lambadrenginn hann Sleða-Stebba sem var brúðguminn í þessu tilfelli og gekk hann að eiga Ásdísi eina. Þar sem þau voru með athöfnina á flöskudegi var ákveðið að nýta helgina til ferðalags á suðurlandinu þ.e nýta ferðina austur fyrir fjall.
Eldri Bróðirinn hafði ákveðið að slágst í för með oss í tjaldferðalag og var kauða að sjálfsögðu tekið fagnandi.
En giftingin og veizlan voru haldin á bæ einum í Gnúpverjahrepp og var þetta alvöru sveitabrúðkaup og veizlan í skemmu/hlöðu. En veður var þarna gott og alltaf gaman að komast í útilegu sama svo hvurt tilefnið er.
Nú þar sem brúðhjónin höfðu óskað eftir aurum í gjöf var ákveðið að endurtaka leikinn frá í brúðkaupi Jarlaskáldsins og Tóta nema nú gengum við alla leið og var allt í eins krónu mynd fyrir utan nokkra þúsundkalla sem voru í stærri mynt. Gaman að því og sjerstaklega þegar oss frétti það að það hefði verið vesen að skipta þessu og komið þeim næztum því í vandræði. Tvöfalt grín það.
Jæja ætla svo ekkert að vera tala um fólk sem flestir hjerna þekkja lítið sem ekkert svo bezt er bara að vísa á myndir frá deginum sem má skoða hjer
fimmtudagur, ágúst 27, 2015
Jaðarsport
Nú um ca akkúrat nákvæmlega miðjan júlí mánuð var einn góðviðrisdag ákveðið að skella oss í hjólheztatúr. Ekki var nú leiðin sem ákveðin var frumleg en skemmtileg engu að síður. Nú hjer er auðvitað verið að tala um jaðarinn. Þeir sem þarna stígu á sveif voru:
Stebbi Twist á Merida One Twenty 7.800
Bergmann á Merida One Sixty 7.900
VJ á Merida One Twenty 7.800
100% Merida M.O.R.E bike
Oss var skutlað uppeftir og hófum bara að hjóla sem leið lá í ve(r)stur átt. Þetta gekk allt saman og stóð Bergmann sig prýðilega þrátt fyrir að vera nýstíginn af meiðzlalistanum. Vjer urðum svo varir mannaferða er tveir menn komu aftan að okkur og stungu síðan oss af. Gaman að segja frá því. Nú svo er komið var í malarbrekkuna fór Stebbalingurinn fyrstur þar sem átti að taka myndir af hinum. Ekki vildi betur til en svo kauði sprengdi þar sem farið var svo hratt að það spark. Nú á meðan dekkjaviðgerðum stóð renndu svo aftur tvær sálir framhjá oss. Aldrei hefur áður orðið svo mikið vart mannaferða. En svo var bara haldið sem leið í lá í Heiðmörkina og svo endað í Apres í skúrnum hjá Bergmann. Bara rétt eins og það á vera eftir góðan sumarhjólatúr
Það má svo alveg skoða myndir frá kveldinu hjer
Kv
Hjólheztadeildin
miðvikudagur, ágúst 26, 2015
Kippt úr Snörunni
Þegar flestir voru svona við það að ná úr sjer draugum Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð ákvað hjóladeildin að hjóla úr sjer þynnkuna í Snörunni. Hittingur var við gasstöðina við Rauðavatn. En þar voru saman komnir:
Stebbi Twist á Merida One Twenty 7.800
Maggi á Móti á Merida One Twenty 7.800
Matti Skratti á Specialized Enduro Expert Carbon
Gunni Sig á Trek GF Superfly 100
Bubbi Flubbi á Specialized Fat Boy
Síðan sáu Breska Heimsveldið og Japanska Keizaradæmið um að koma oss á réttar slóðir.
Veður var þetta kveld með ágætum og ætíð gaman að hjólast Snöruna. Er vjer vorum á bakaleiðinni þ.e eftir að hafa gjört stuttan stanz við Okruveituskálann hittum við á hóp frá Tind m.a þar var Emil í Kríu með í förum. Þau buðu oss að slást með í för sem og við gjörðum. Varð úr hið sérdeilis aldeilis prýðilegasta kveld og góður hjólatúr.
Sé vilji fyrir hendi má skoða lélegar símamyndir frá kveldinu hjer
Kv
Hjólaheztadeildin
þriðjudagur, ágúst 25, 2015
Helgin: Messudagur
Fysti dagur nýrrar viku rann upp og fólk skreið á fætur eins og gengur og gjörist. Svona eðli málsins skv var þetta brottfarardagur og því fór fólk að tína saman föggur sínar svona hist og her. Þetta var reyndar ágætur dagur og veður helst fínt en alltaf var einhver rigning í loftinu sem aldrei kom þó amk ekki áður en fólk náði að pakka. Þegar allt var komið niður og inní bíl. okkar tilfelli Konung jeppana, var haldið að indjánatjaldinu þar sem Bubbi Flubbi bauð upp á grill og pulzur. Var slíkt vel þegið svona rétt áður en vjer yfirgáfum Goðaland. Heimför gekk vel og eftir að komið var yfir Steinsholtá tók húsfreyjan á H38 við stýrinu og ók sem leið lá á Hvolsvöll. Fátt svo sem markvert var í gangi þennan dag enda allir orðnir svo stilltir og dannaðir
En alla vega þá má skoða myndir frá deginum hjer
mánudagur, ágúst 24, 2015
Helgin: Laugardagur
Laugardagurinn rann upp og eins og málin hafa þróast þegar kemur að fystuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð þá eru flestir komnir á ról fyrir hádegi og það jafnvel vel fyrir hádegi.
En þennan veðurdag var veður með ágætum og enn og aftur sannast það að veðurfræðingar ljúga öllum stundum. En það var ýmislegt sem fólk gjörði sjer til dundurs. Eldri Bróðirinn ásamt Steina í Everest og Dísu skelltu sjer í hjólheztatúr á meðan aðrir létu sjer göngutúr duga.
Vjer litla fjölskyldan á H38 skelltum oss í rölt ásamt Hólmvaðsklaninu, Bubba Flubba&Co og Brekku-Billi. Við örkuðum sem leið lá upp á Réttarfell og þar upp nutum vjer útsýnis ásamt leiðsögn Bubba á jarðfræði svæðisins. Ekki amalegt það. Svo var bara rölt niður og má segja að Réttarfell hafi verið eins konar útúr dúr af Básahringnum.
Þegar niður á flötina góðu var komið var barasta farið að gjöra kveldmatinn klárann og auðvitað var svona árshátíðargúmmulaði eða þannig. Síðan tók bara brennan við og eitthvað eftir það.
En amk þá eru myndir til frá deginum og eru þær komnar á lýðnetið. Það má skoða afraksturinn hjer
föstudagur, ágúst 21, 2015
Helgin: Flöskudagur
Þó að það sé nokkuð um liðið þá er það auðvitað ekkert of seint að ætla sjer að segja aðeins frá Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurammæliferð þetta árið.
Rétt eins og kom nokkrum sinnum fram við birtingu skráningarlistum hjer á vormánuðum þá var þetta 20 ára ammælisferð V.Í.N. fyrstu helgina í júlí. Sum sje Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð V.Í.N. er eldri en (drykkju)menningarnótt R-listans. Það er Guðmundur Magni Ásgeirsson. En hvað um það
Það voru Twist fjölskyldan á Konungi jeppanna ásamt Yngri Bróðirnum og fjölskyldu sem komu fyrst á staðinn. Vjer komum oss bara fyrir á flötinni í góðu og veður með ágætum. Eftir að hafa komið sjer fyrir var farið að huga að kveldmat. Svo tóku hinir ýmsu gildu limir að týnast inn svona eftir því sem leið á kveld og líka viðhengi. En á eftir oss komu
Bergmann með fullt af fylgdarliði
Brabrasonurinn en sleppti tjaldvagninum þetta árið
Eldri Bróðirinn og Brekku-Billi
Bubbi Flubbi&Co
síðan að lokum Steini í Everst ásamt spúzzu sinni Dísu
Fólk kom sjer bara fyrir og síðan var bara spjallað og sötrað öl fram eftir kveldi allt svona frekað dannað. Amk var engu skilti stolið þetta flöskudagskveld.
En alla vega þá má skoða myndir frá deginum hjer
þriðjudagur, ágúst 18, 2015
Fréttir
Svona til að taka af allan vafa, afa, þá eru fréttir af andláti fréttaritara stórlega ýktar, um sinn amk. Nú þegar sumar er að ljúka fromlega og drykkjumenningarnótt framundan má fara að búast við auknum tíðindum og jafnvel gömlum frásögnum og hetjusögum frá liðandi sumri
Kv
Fréttadeildin
Kv
Fréttadeildin
sunnudagur, júlí 12, 2015
Árshátíðarbaðið
Miðvikudaginn fyrir fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurárshátíðarammælisferð var haldið í hið árlega árshátíðarbað í Reykjadal. Líkt og hefur verið síðustu árin hjá voru hjólhestarnir fararskjótarnir. Það var sæmilega fjölmennt þetta árið sem er að sjálfsögðu vel. En þau sem voru þarna á ferðinni voru:
Stebbi Twist á Merida One Twenty 7.800
Krunka á Cube LTD SL
VJ á Merida One Twenty 7.800
og sá Pæjan um að koma oss upp á Hellisheiði en líka fékk Trekinn hanz Sigurgeirs að fljóta með
Maggi á móti á Merida One Sixty 7.900
Elín Rita á Merida One Twenty 7.800
Sigurgeir á Trek GF Mamba
Bubbi Flubbi á Specialized Fat Boy
Og sá Sindý um að koma þeim fram og til baka.
Það gekk bara vel að hjóla þetta en Bubbi lenti í því að sprengja en auðvitað var því kippt í liðinn, ef svo má segja, hratt og örugglega. Síðan var bara farið niður í Reykjadal og allir komust þangað óslasaðir. Þegar komið var niður í Reykjadal blasti við manni hálf skrýtin sjón. En þar er búið að pallavæða alls staðar meðfram læknum og búið að koma upp skilrúmum fyrir fataskipti. Já, hvað varð um Reykjadalinn minn..
En alla vega hverju sem það skiptir þá komust allir í bað, sem var jú megin tilgangur þessarar farar og allir viðstaddir tókst að grjöra sig hreina og fína. Ekki vill fólk vera skítugt og það á sjálfri árshátíðinni. Ónei
Baka ferðinn niður í Hvergigerði gekk að vonum nema hvað VJ náði ekki einni beygjunni og endaði því utan vega. Má hann búast við kæru vegna þess.
Það ætlaði svo ekki að ganga þrautalaust að rata aftur til Hvergigerði að benzínstöðinni vegna vegavinnuverkamannaskúra sem voru á leiðinni og þurftum þvi að þræða oss í gegnum eitthvað hoho hverfi. En öllum tókst að skila sér of fóru hrein og fín heim til síns aftur. Allir orðnir spikspenntir fyrir Helginni
Fyrir nennusama þá má skoða myndir frá kveldinu hjer
föstudagur, júlí 10, 2015
Agureyrish: Messudagur
Þá rann upp messudagur og það þýddi burtfarardagur. Við tókum því reyndar bara frekar rólega og vorum svo sem lítið sem ekkert að flýta oss úr bænum. Vjer leyfum bara Skottu að taka lúrinn sinn og þar sem vjer vissum líka að umferðin væri þung suður á boginn lá heldur ekkert á.
En ekkert svo sem merkilegt eða áhugavert var gjört á leiðinni og einungis steindauður þjóðvegaakstur. En toppurinn á ferðinni var stórglæsilegur International Harvester Scout sem varð á vegi oss í pizzustanz í Varmahlíð sem og að sjá gufuskipið Hval eitthvað sigla út Hvalfjörðinn. Já stundum þarf lítið til að gleðja mann og gjöra góðan dag betri
En allavega er hægt að skoða myndir frá heimferðinni hjer
fimmtudagur, júlí 09, 2015
Agureyrish: Laugardagur
Upp rann laugardagur og bezt að monta sig af því að við gátum sofið út eða næztum því til 11 um morguninn. Ekki amalegt það. En það sem var á planinu þennan dag, fyrir utan veizluhöld, var að skella sér litla Eyjafjarðarhringinn á hjólheztum.
Eftir morgunmat, messu og mullersæfingar var lítið annað gjöra en að skella sér á hnakkinn og stíga svo á sveif. Við fórum sem leið lá frá Tröllagilinu í átt að Kjarnaskógi í gegnum Naustahverfið. Við komum svo niður á þjóðveg neðan við Kjarnaskóg og þaðan var eiginlega bara beinn og ,,breiður" vegur suður í Hrafnagil. Þar var tekinn stuttur stanz og myndað við heztagerðið eins og sjá má. Sem og voru nokkrar fleiri myndir teknar þar. Síðan var bara haldið sem leið lá fyrst austur á boginn og svo í norðurátt. Þetta er hinn prýðilegasti hringur amk við þær aðstæður sem við voru í. Síðar um daginn tók svo við kaffisamsæti og grill um kveldið. Annað merkilegt gjörðist ekki þennan dag,
Amk má sjá myndir frá deginum hjer
miðvikudagur, júlí 08, 2015
Agureyrish: Flöskudagur
Núna síðustu helgina í júní þurfti maður að sinna skyldunni því það var sextugsammæli hjá föður hennar Krunku þá helgi. Ekki er svo sem ætlunin að segja frá því í smáatriðum. En hvað um það
Vjer lögðum í´ann rétt eftir hádegi á flöskudeginum og með tvo hjólhezta á toppnum. Þessa helgina var ætlun in að gefa fjallahjólunum frí og voru því racerinn og cyclocrossinn með í för á toppnum, Síðan rétt eftir hádegi á flöskudag var lagt í´ann úr bænum þennan sólríka föstudag
Svo að svona gömlum vana þá er auðvitað ætlunin að telja upp hverjir voru á ferðinni og á hverju. En þarna voru á ferðinni:
Stebbi Twist
Krunka
Skotta Twist
og sá Pæjan um að koma okkur á milli landshluta.
Síðan voru með í samfloti aldraðir foreldrar Stebbalings á Ford Focus
Óhætt er að fullyrða að sumar var komið þessa helgi. Sól alla leið og frábær fjallasýn. Skotta sofnaði svo fljótlega eftir komið var útfyrir bæjarmörkin og vaknaði eigi fyrr vjer vorum komin framhjá Staðarskála. Því varð úr að gjöra stanz í Víðihlíð. Þar eru komnir nýjir rekstaraðilar og því ákveðið að taka það út. Í Víðihlíð fengum við topp þjónustu og var súpa dagsins, sveppasúpa hin sæmilegasta, mæðgurnar fengu sér kjetsúpu og síðan sá síðasti skellti sér á kotilettur. Allir voru vel sáttir með sína máltíð og óhætt að mæla með stoppi þarna. Ekki er síðan úr vegi að amk annar rekstraraðilinn er úr Breiðholti. Það eru góð meðmæli.
Eftir að allir voru mettir var haldið áfram sem leið lá og framundan var hin leiðinlegi og endalausi Langidalur. En bót í máli var að alltaf helst blíðan. Er rennt var í Varmahlíð þurti að gjöra þar stuttan klósettstanz. Eftir að allir sem það þurftu höfðu létt af sér beið bara höfuðstaður norðausturlands oss. Ekki var nú minni blíða þar en annars staðar á leiðinni. Ótrúlegt en satt. Þar tók við svona hitt og þetta en þegar öllu því var lokið gat Litli Stebbalingurinn hent sér í verkefni kveldsins sem var að skella sjer á hjólhezti upp í Hlíðarfjall eða amk að Skíðahótelinu.
Það var því skellt sér í spandexið, vatn í brúsa og stígið á sveif upp á við. Uppferðin gekk bara vel og verður að segjast að þetta var auðveldara en Stebbalingurinn hafði haldið. Þó svo að ekki hafi verið farið hratt upp en upp komumst menn. Eftir smá pásu uppfrá og myndatökur var lítið annað að gjöra en að koma sjer aftur niður og láta bara Newton um meztu vinnuna. Niðurferðin var skemmtileg en kannski fór maður ekki eins hratt niður og maður hélt, manni finnst þessar bremsur eitthvað svo daprar m.v á fjallahjólinu og sjálfsagt skortir smá þor en það kemur. En þegar öllu er á botninum hvolft þá er þetta hörkuskemmtun og má alveg mæla með þessu. Gott brekkuklifur skilar sjer oftast í niðurferðinni. Þegar niður var komið verðlaunaði maður sig með einum köldum og hressandi svona fullorðins svaladrykk.
Hafi einhver áhuga má skoða myndir frá deginum hjer
þriðjudagur, júlí 07, 2015
Í snörunni
Nú einn góðan mánudag í síðasta mánuði var ákveðið að skella sér í Snöruna. Það voru 4 sálir sem voru saman komnir í Hólmvaðinu en þar voru:
Stebbi Twist á Merida One Twenty 7.800
VJ á Merida One Twenty 7.800
og sá Pæjan um að ferja þá kauða uppeftir og til baka
Bergmann á Merida One Sixty 7.900
Maggi á móti á Merida One Twenty 7.800
Og sá Silfurrefurinn um að koma þeim köppum fram og til baka
Við rúlluðum svo af stað en ekki byrjaði það vel því er komið var á slóðan voru menn ekki alveg vissir hvort það ætti að fara hægri eða vinstri. En að lokum var að sjálfsögðu farið til hægri. Svo var hjólað upp og niður, hjólin borin upp og allt það. Svo áður en vjer vissum af vorum við kominir að skála Orkuveitu Reykjavíkur þar sem var nýbúið að bera á pallinn þann. En er þangað var komið hnikruðum vjer eftir Gunna Sig eða bara Gusa en þar birtist kallinn á sínu Trek GF Superfly 100. Alltaf gaman að hjóla í góðra manna hóp. Vjer heldum svo bara áfram sem leið lá upp í þokuna en með þó nokkrum ,,hindrinum" á leiðinni en ekkert sem stoppaði oss þó við þurftum að stíga af hjólunum við þær athafnir. En hvað um það. Er vjer vorum undir Vörðuskeggja þá birti til og við fórum skyndilega að sjá eitthvað, það var mögnuð sýn. En alla vega svo var ekkert annað að gjöra nema hjóla áfram uns komið var að því að hjóla niður til þess að koma inn á Nesjavallaveg þar sem maður leggur alltaf farartækjunum þegar gengið er á Hengill. Við komum svo til baka að bílunum einhverntíma langt eftir miðnætti og allir sáttir ef magnaðan hjólatúr það kveldið
Sé nenna hjá einhverjum má skoða myndir frá kveldinu hjer
Kv
Hjólheztadeildin
mánudagur, júlí 06, 2015
Jaðarmenning
Sunnudaginn fyrir tveim vikum kom loks sumarið. Í tilefni þessi var tekin sú skyndiákvörðun hjá VJ og Litla Stebbaling að skella sér eina buna í Jaðrinum. VJ bauðst til að útvega sjálfrennireið og bílstýru uppeftir og var það vel þegið. Þau renndu svo hjer við á H38 og var þá hjólagrindinni skellt á dráttarkúluna og önnur Merídan þar á. Ekið var svo sem leið lá í átt að Bláfjöllum svo á réttum stað fóru Stebbalingurinn og VJ úr sjálfrennireiðinni og tóku fram hjólheztana. HT brunaði svo í burtu í dísel mekki og skildi tvo litla hrædda stráka eftir. En það var ekkert annað að gjöra en bara koma sér af stað og rúlla niðureftir. En áður en lengra er haldið er bezt að halda í gamlar hefðir og telja upp þá sem þar voru á ferðinni en þar voru:
Stebbi Twist á Merida One Twenty 7.800
VJ á Merida One Twenty 7.800
og sá HT um að koma oss uppeftir á Togaýta Ladycruiser í eigu þeirra hjónaleysa
Kannski má segja að helsta vandamál þessa dags hafi verið hiti og sól því oss gátum amk ekki kvartað undan kulda né vosbúð. Skaflarnir höfðu minnkað eitthvað frá síðast en voru samt alveg á sínum stað. Alltaf gaman að sjá snjó og ekki ber að kvarta undan því. Ferðin gekk amk vel og auðvitað var þetta frekar mikið gaman. Við komum svo niður í Lækjarbotna og alltaf er verið að bæta leiðina sem er auðvitað bara vel. Tökum svo smá leikaraskap í Lubbunanum en þar sem Stebbalingurinn var á leið til vinnu um kveldið var kannski ekki tími til mikila fíflaláta. En við hjóluðum svo bara sem leið lá heim með við komu í eyjunni í Elliðaárdalnum hjá gömlu rafstöðinni.
En fyrir áhugasama má skoða myndir frá túrnum hjer
Kv
Hjólheztadeildin
fimmtudagur, júlí 02, 2015
Öskurhlíðin
Nú þegar Bláalónsþrautin var að baki þá þurftu menn að hjóla sig aðeins niður og því þótti það kjörið að skella sér í Öskjuhlíðina í Reykjavík og leika sér aðeins þar. Þeir eða öllu heldur þau sem komu þarna saman til leika aðeins voru:
Stebbi Twist á Merida One Twenty 7.800
Eldri Bróðirinn á Merida One Twenty 7,800
Maggi á móti á Merida One Twenty 7.800
VJ á Merida One Twenty 7.800
Bubbi á Specialized Fat Boy
Steini í Allraefst á Wheeler R.A.M.P.34
Frúin hanz Steina í Allraefst á óskilgreindu hjóli
Það var farið þvers og kruss um alla Öskjuhlíð og haft gaman af. Einn skugga bar þó á ferðina en Eldri Bróðirnum tókst að slasa sig, kemur á óvart, en hann datt af rampi og lenti á vinstri öxlinni og fékk bágt. Ekki gaman að því en vonandi jafnar kauði sig sem fyrst og geti komið út og farið að hjóla
En sé áhugi fyrir hendi þá má skoða myndir frá þessu kveldi hjer
Kv
Hjólheztadeildin
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
