Já komið sæl og blessuð þessa vikuna.
Þá er komið að þessu vikulega, sem er vonandi skárri en þessi mánaðarlega heimsókn Rósu frænku hjá veikara kyninu, en hvað um það.
Líkt og ekki ætti að hafa farið framhjá nokkrum kjafti þá ku þessi Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð verða 20 ára ammælis ferð. Já fyrir 20 árum síðum vorum við í (Blaut)Bolagili að drekka frá okkur ráð og rænu í rigningu og sudda. Elli sprelli var nú reyndar edrú það kveldið og fór sagnaritari með honum á Gleði græna risanum yfir í Húsadal þar sem menntaskólanemar þess tíma voru að njóta sín í íslenzkri náttúru. En síðan þá hefur bæði gráu hárunum fljólgað, sem hárið minnkað hjá sumum en fleztir eiga það þó sameiginlega að vera komnir með meira mitti. Enda ófáir bjórar sem hafa haft þar viðkomu á þessum 20 árum.. Jæja en nóg um söguskýringar. Sjálfsagt verða sagðar margar sögur Helgina og taka skal það fram að þær verða allar sannar.
En komum okkur bara að nafnalistanum góða þessa vikuna
Ammælisgeztir:
Stebbi Twist
Krunka
Skotta Twist
Bergmann
Ammælisjeppar:
Willy (af gömlum vana)
Eins og sjá má þá fer skráning hægt af stað en slíkt hefur nú gjörst áður svo óþarfi að fara á taugum yfir því. En kannski ekki úr vegi að minna fólk á hvernig þetta fer fram. Fólk einfaldlega tjáir sig í skilaboðaskjóðunni hér að neðan þar sem það nefnir sig og jafnvel sína á jafn og þá er skráning komin. Einfalt, fljótlegt og þægilegt
Kv
Skráningardeildin
miðvikudagur, janúar 28, 2015
sunnudagur, janúar 25, 2015
Sumarið er tíminn
Dömur mínar og herrar.
Nú fyrir helgi kom fram erindi í vinnunni hjá Litla Stebbalingnum um að fyrir 1.feb nk þyrftu starfsmenn að vera búnir að sækja um sumarfrí. Svona frekar í fyrri kantinum. En hvað um það.
Líkt og margir í þessum félagsskap þá ræðst sumarfríið af því hvenær starfsfólki leiksskóla bæjarins þóknast að fara í sumarfrí. Á reyndar eftir að komast að því hjá undirrituðum en hvað um það.
Nú er bara Litla Stebbalingnum smurt.
Er einhver áhugi og vilji hjá gildum limum þessa félags að skella sér saman í sumartúr í sumarfríinu. Hvort sem það er að hluta eða allt skiptir ekki öllu.
Alla vega fóru Hólmvaðsfjölskyldan og Twistklanið saman í nokkra daga túr í fyrra. Með nokkrum óvæntum atvikum en það er bara til að hafa gaman að. Það hefur amk verið rætt lítillega að endurtaka leikinn á sumri komandi og jafnvel gjöra aðra tilraun við norðanverða ve(r)stfirði svona amk ef veðurguðirnir verða oss hliðhollir. Það væri amk gaman að heyra hljóðið í fólki sé það farið að spá í sumarið
Kv
Sumargleðin
miðvikudagur, janúar 21, 2015
Þriðji í skráningu 2015 AD
Svo þið segið það. Bara strax komið að þeim þriðja þetta árið og það á sjálfu 20 ára ammælisárinu. Hverjum hefði dottið það í hug. En hvað um það. Svona líkt og mörg hin fyrri ár fer skráning rólega af stað. En einhverntíma sagði tjellingin að mjór væri mikils vísi. Eigum við ekki bara að trúa því. Sömuleiðis sagði Jim Morrison, eða var það nakti índjáninn?, við Wayne að ef hann bókaði þær myndi þær koma.
Þetta voru smá útúr dúrar. Sagan segir nú að bökunarmeiztar V.Í.N. ætli sér að koma með og bjóða upp á 20 metra langa franzka súkkulaði tertu á laugardagskveldinu er það vel.
Er er ekki bara málið að koma sér að máli málanna þessa vikuna sem er að sjálfsögðu nafnalisti hinna viljugu og staðföstu.
Ammælisgeztir;
Stebbi Twist
Krunka
Skotta
Bergmann
Ammælisjeppar:
Willy
Jæja það var mál málanna að hafa þetta sutt þess vikuna og því verður þetta ekki lengra að sinni.
Þanngað til í næztu viku
Kv
Skráningardeildin
Þetta voru smá útúr dúrar. Sagan segir nú að bökunarmeiztar V.Í.N. ætli sér að koma með og bjóða upp á 20 metra langa franzka súkkulaði tertu á laugardagskveldinu er það vel.
Er er ekki bara málið að koma sér að máli málanna þessa vikuna sem er að sjálfsögðu nafnalisti hinna viljugu og staðföstu.
Ammælisgeztir;
Stebbi Twist
Krunka
Skotta
Bergmann
Ammælisjeppar:
Willy
Jæja það var mál málanna að hafa þetta sutt þess vikuna og því verður þetta ekki lengra að sinni.
Þanngað til í næztu viku
Kv
Skráningardeildin
miðvikudagur, janúar 14, 2015
Annar í skráningu 2015 AD
Góðan dag gott fólk. Já alltaf styttist í ammælis Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð 2015, ekki nema rúmlega 20 vikur. Já, allt að gjörast. Reyndar fyrir 20 árum síðan var farið í (Blaut)Bolagil kannski með aðeins öðrum formerkjum en eitt hefur ekki breyst sem er auðvitað að eiga góða helgi með skemmtilegu fólki.
Nú segir sagan það að von sé á einni gamali kempu. Sem var tíður geztur hér á árum áður og þá jafnan við góðan orðstýr. Kappi þessi gerðist síðan sendiherra í danaveldi og er nú að sinna ræðismannahlutverki í S-Þingeyjarsýzlu. Hér er að sjálfsögðu verið að tala um sjálfan og engann annann en Smartísinn. Ekki hefur kauði nú skráð sig formlega en við afhendingu trúnaðarbréfs minninst hann á að mæta og það af fyrra bragði. En hvað um það. Bara eins gott að Bergmann mæti svo að hann missi nú ekki út ár.
Hættum nú að hugsa um það og komum okkur að því sem máli skiptir amk þessa vikuna sem er að sjálfsögðu nafnalisti þeirra viljugu og staðföstu
Ammælisgeztir:
Stebbi Twist
Krunka
Skotta Twist
Bergmann
Ammælisjeppar:
Willy
...og fleira hefur skráningardeildin ekki um þetta mál að segja þessa vikuna
Kv
Skráningardeildin
Nú segir sagan það að von sé á einni gamali kempu. Sem var tíður geztur hér á árum áður og þá jafnan við góðan orðstýr. Kappi þessi gerðist síðan sendiherra í danaveldi og er nú að sinna ræðismannahlutverki í S-Þingeyjarsýzlu. Hér er að sjálfsögðu verið að tala um sjálfan og engann annann en Smartísinn. Ekki hefur kauði nú skráð sig formlega en við afhendingu trúnaðarbréfs minninst hann á að mæta og það af fyrra bragði. En hvað um það. Bara eins gott að Bergmann mæti svo að hann missi nú ekki út ár.
Hættum nú að hugsa um það og komum okkur að því sem máli skiptir amk þessa vikuna sem er að sjálfsögðu nafnalisti þeirra viljugu og staðföstu
Ammælisgeztir:
Stebbi Twist
Krunka
Skotta Twist
Bergmann
Ammælisjeppar:
Willy
...og fleira hefur skráningardeildin ekki um þetta mál að segja þessa vikuna
Kv
Skráningardeildin
miðvikudagur, janúar 07, 2015
Fyrsti í skráningu 2015 AD
Já gott fólk þið lásuð rétt. Þar sem nýtt ár kom fyrir tæpri viku síðan þá ætti það tæpast að koma neinum á óvart að skráning fyrir 20 ára ammælis Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð 2015 er hafin og nokkrir einstaklingar komnir á skrá. Er það vel.
Það hefur nú eitthvað vatn runnið til sjávar á þessum 20 árum og margar sögur orðið til. T.d af rauðhærða demparagyðingnum sem fékk, árið 1995, greiddar 10.000 íslenskar nýkrónur þá talsvert minna verðlausar en í dag, hjá einhverjum gaur til að sækja kærustu hanz í Stóru Mörk en þá vildi ekki betur til en svo að kella hafði fundið sér far innúr. Svo þetta var fýluferð nema fyrir vezkið hjá rauðhærða demparagyðingnum. Líka fer það í sögubækurnar þessa fyrstu ferð að sólin á Íslandi hefur aldrei verið eins sterk eins og frá miðjum laugardeginum og fram á sunnudag. Svona amk ef marka má öll þau brenndu bök og axlir sem komu heim eftir þessa fyrstu Helgina,
En nóg af söguskýringum, jafnvel er von á fleirum næztu vikur hver veit? Er ekki bara málið að koma sér að listanum góða
Eins og kom hér fram að ofan hófst skráning í síðustu viku og fór bara sæmilega af stað en ekki eins vel og hér fyrir eins og 8 árum. En hvað um það nú eru breyttir tímar.
Ammælisgeztir:
Stebbi Twist
Krunka
Skotta Twist
Bergmann
Ammælisjeppar:
Willy
Kv
Skráningardeildin
Það hefur nú eitthvað vatn runnið til sjávar á þessum 20 árum og margar sögur orðið til. T.d af rauðhærða demparagyðingnum sem fékk, árið 1995, greiddar 10.000 íslenskar nýkrónur þá talsvert minna verðlausar en í dag, hjá einhverjum gaur til að sækja kærustu hanz í Stóru Mörk en þá vildi ekki betur til en svo að kella hafði fundið sér far innúr. Svo þetta var fýluferð nema fyrir vezkið hjá rauðhærða demparagyðingnum. Líka fer það í sögubækurnar þessa fyrstu ferð að sólin á Íslandi hefur aldrei verið eins sterk eins og frá miðjum laugardeginum og fram á sunnudag. Svona amk ef marka má öll þau brenndu bök og axlir sem komu heim eftir þessa fyrstu Helgina,
En nóg af söguskýringum, jafnvel er von á fleirum næztu vikur hver veit? Er ekki bara málið að koma sér að listanum góða
Eins og kom hér fram að ofan hófst skráning í síðustu viku og fór bara sæmilega af stað en ekki eins vel og hér fyrir eins og 8 árum. En hvað um það nú eru breyttir tímar.
Ammælisgeztir:
Stebbi Twist
Krunka
Skotta Twist
Bergmann
Ammælisjeppar:
Willy
Kv
Skráningardeildin
mánudagur, janúar 05, 2015
Um miðdegismál
Fyrst að nú er árið 2015 runnið upp með bætum hag og blóm í haga. Er þá ekki úr vegi að klára að gjöra árið 2014 upp í máli og myndum?
En þannig var mál með ávexti að helgi eina seinni parts október mánaðar skruppum við hjúin í örlitla og létta messudagsgöngu upp á fjall eitt á Reykjanesskaga. Fjall þetta ku víst nefnast Miðdegishnjúkur og er staðsettur við Kleifarvatn á Sveifluhálsi. En hvað um það.
Þetta var amk fagur haust messudagur og því kjörið að nota hann til smá útiveru. Alla vega þá gekk uppgangan stóráfallalaust fyrir sig og í kaupbæti fengum við smá snjó, alltaf gaman að því. Síðan má bæta því við að oss komust svo klakklaust aftur að Polly. Svo til uppfylla snert af einhverfunni hjá Litla Stebbalingnum þá þurfti auðvitað að taka hring og fórum við í gegnum Grindavík á heimleiðinni. Þegar þagað var komið rúntuðum oss aðeins um bæinn og m.a kíkjum á tjaldstæði bæjarins. Það verður barasta að segjast að það leit vel út og grinilegt. Spurning með útilegu þangað t,d í sumar þá væri hægt fyrir áhugasama að hjólheztast þangað, En hvað um það nú erum við komin út fyrir efnið.
Sum sé fyrirtaks messudagsrölt á auðveldan tind og séu einhverjir áhugasamir þarna úti má skoða myndir frá töltinu hér
Kv
Göngudeildin
fimmtudagur, janúar 01, 2015
Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurammælisferð 2015
Þá er komið upp árið 2015 og vill undirbúnings-og eftirlitsnemdin senda lesendum sem landsmönnum öllum og jafnvel allum alheiminum hugheilar nýárskveðjur
Árið 2015 er nú þegar orðið merkilegt fyrir þær sakir að í ár eru slétt 20ár frá því að nokkrir hressir menntaskólapiltar héldu sitt perriat ásamt hinum ýmsu vinum og vandamönnum í (Blaut)Bolagili fyrstuhelgina í júlí. Síðan eru líðin 20 ár og hjá sumum er komið minna hár en meira mitti og ekki fallið úr eitt einasta ár. Hvet þó fólk til spyrja Bergmann hversu mörg ár í röð kauði hefur mætt í Mörkina eða Bása fyrstuhelgina í júlí
Eins og kom fram hér á undan þá hefr ekki fallið út eitt einasta ár frá því V.Í.N, hóf að halda sína árshátíð á þessum slóðum. Að sjálfsögðu á ekki að gjöra undantekningu þetta árið. Líkt og undanfarin c,a 9 ár þá hefst skráning núna í dag. Eða öllu heldur hófst hún á síðasta miðnæti.
Eins og svo oft áður þá er bara að skrá sig í skilaboðaskjóðunni hér að neðan. Nefna nafn og jafnvel jeppabifreið sé slík til staðar.
Koma svo allir og gjörum þessa 20 ára ammælis fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð sögufrægasta af þeim öllum
KOMA SVO OG LÁTA SJÁ SIG þó ekki nema væri aðra nóttina dagana 3-5. júlí nk
Kv
Skráningardeildin
P.s Skráning er hér með hafin
föstudagur, nóvember 14, 2014
fimmtudagur, nóvember 13, 2014
Krunka fer í kvennareið
Nú októbermánuði síðast liðnum fór Krunka í sannkallaða kvennareið í gegnum Jaðarinn ásamt 80 öðrum tjéllingum. Þetta var sum sé fjallahjólastelpusamhjól Hjólaþjálfunnar og Arnarins, Óhætt er að fullyrða að þær stöllur hafi fengið hið prýðilegasta veður þarna. Amk var Jaðarinn þurrari en þegar hjólheztadeild V.Í.N. fór þarna. Það var töff að sjá hersinguna leggja af stað af Bláfjallavegi en það var svo endað í köku og grilli við Elliðavatnsbæinn. En þar á meðal var Hrabbla á Cube LTD SL
Krunka var vopnuð myndavél og má sjá útkomuna hér
þriðjudagur, nóvember 04, 2014
Aftur hjólað á Helgafell
Þann 11.okt s.l lét Litli Stebbalingurinn Matta Skratta plata sig aftur til að taka léttan túr upp á Helgafell. Að auki var Bergmann með oss í ferð. Því voru þarna þremenningarnir þrír á ferðinni eða:
Stebbi Twist á Cube
Bergmann á Merida
Matti Skratti á Specialized
Sá svo Patti um að koma okkur uppeftir eins og svo oft áður
Þessi ferð var í allastaði betri en sú síðasta og sjálfsagt spilaði veðrið þar stóran hluta en líka það að manni tókst að hjóla örlítið meira en síðast en ekki áttum við roð í gamla manninn þ.e Matta Skratta.
Allavega þá má nálgast myndir frá deginum hjer
sunnudagur, nóvember 02, 2014
Fann ekki leiðina heim
Núna fyrstu helgina í október fór FBSR með nillana í B1 upp í Tindfjöll þar sem verklegi hluti rötunar fór fram. Nú þetta var allt svo sem hefðbundið nema hvað að þessu sinni var Litli Stebbalingurinn akandi. En það var lagt af stað úr bænum á flöskudegi og er komið var við Fljótsdal var bæði nillum og inngengnum hent út til að rölta uppeftir. Einni gildi limur V.Í.N, þarna var
Stebbi Twist
Síðan voru þónokkrir góðkunningjar eða:
Matti Skratti og Arnaldur Diablo sem höfðu yfir umsjón með þessu eins og oft áður
Brekku Billi
Sleða Stebbi
Ásdís hanz Stebba
Sleða Stebbi og Ásdís hanz Stebba voru á LC 90 og undirritaður ásamt Brekku Billa á FBSR5 sem er Togaogýta Hrælúx. Það kom oss skemmtilega á óvart hvað mikil snjór var uppfrá. Reyndar hundleiðinlegur snjór að því leyti að hann þjappaðist lítið sem ekkert en mjór er mikils vísi.
Við komum svo að þvi þar sem tjaldbúðir voru reistar og slógum upp Rei-tjaldinu og komum okkur fyrir. Ljúft að komast aftur í tjald og lúlla í því.
Þegar við risum svo á fætur á laugardagsmorgninum hafði snjóað meir og ekkert nema gott um það að segja. Eftir að nillunum var komið út á örkina gerðum við bílamaurar heiðarlega tilraun til að komast upp í ÍSALP skála. Höfum ekki fleiri orð um það en þangað drifum við ekki. Ofan í einum lækjarfarvegi var snjór upp að húddi og pikkfestist sá Grái þar.
Sökum veðurs og aðstæðna m.a snjóflóðahættu var prógraminu aðeins breytt en ekki farið nánar út í það. Við Billi skruppum svo aðeins til Hvolsvallar að næla okkur í meiri steinolíu fyrir gamla selið og á leiðinni kíktum við aðeins á B2 sem voru í straumvatnsbjörgun í skálanum undir Felli.
Síðan um kveldið var allt afskaplega hefðbundið. Bauna og pulzurétturinn frægi, einn týndist um nóttina. En vegna aðstæðna var ekki hægt að fara að Hafrafelli og því gengið bara aftur niður að Fljótsdal. Við á FBSR 5 renndum niðureftir og kíktum aftur á B2. B1 kom svo niður og þá gat maður ekki misst af keppninni.
Niðurstaða helgarinnar var samt sú að ef snjórinn heldur sér þarna þarna þá lofar það góðu fyrir veturinn
En allavega þá geta áhugasamir kíkt á myndir frá helginni hjer
miðvikudagur, október 29, 2014
Með snöru um hálsinn
Eins og sjá má hér var jafnvel hugmyndin að taka hjólheztatúr næztsíðustu helgina í sept og þá fara Svínaskarð. En eins og oft vill verða þá verða hlutirnir ekki eins og ætlað var í fyrstu. Það týndist úr þeim sem sýndu áhuga og að lokum stóð Litli Stebbalingurinn einn eftir. Nú þá er ekkert annað að gjöra en að breyta plönum. Við Maggi Andrésar ákváðum að skella okkur í hjólatúr á laugardeginum. Allt í einu var Matti Skratti kominn í hópinn og rétt áður en við fórum eitthvað út í buskann kom kauði með þá hugmynd að hjóla Snöruna. Var það samþykkt samhljóða enda vissum við ekkert út hvað við vorum búnir að láta plata okkur út í. Það voru því þrír sem endu að fara þennan dag en það voru:
Stebbi Twist á Cube LTD SL
Maggi á móti á Gary Fisher Cobia 29
Matti Skratti á Specialized Enduro Evo
Pattinn hanz Matta Skratta sá svo um að koma okkur á upphafs-og lokapunkt
Skemmst er frá því að segja að þetta er snilldar leið. Óhætt að fullyrða að við eigum eftir að fara þarna aftur næzta sumar
En bezt að hafa bara sem fæst orð um þetta og láta myndir tala sínu máli hér
sunnudagur, október 26, 2014
Fuglaskoðun í Heiðmörk
Nú um miðjan síðasta mánuð eða öllu heldur þann 16.sept s.l fór B2 hópur FBSR í kveldhjólheztaferð í Heiðmörkina. Litli Stebbalingurinn ákvað að skella sér með og nýta ferðina til fuglaskoðunnar. Reyndar var Stebbalingurinn ekki eini gildi limurinn þarna þetta kveldið því Bergmann skellti sér líka. Svo voru þarna góðkunningjar V.Í.N. eða þeir Bubbi Flubbi aka Bubbi Trucker og Haukur Eggerts
En af svona gömlum vana er ætlunin að telja hér upp nokkra ásamt hjólheztafáka þeirra:
Stebbi Twist á Cube LTD SL
Bergmann á Merida Big Nine TFS
Síðan góðkunningarnir:
Bubbi á Specialized Awol
Haukur Eggerts á Wheeler Pro 29
Upps það gleymdist að minna á einn svona semi gildan lim en það er Benfield sem var með í ferð
Benfield á Trek
Og er hjer með beðist velvirðingar á þessari gleymsku og mistökum
Svo komu bæði nillar sem og inngengnir á alls konar týpum af hjólum ss eins og:
Trek
Scott
Specialized
Wheeler
Mongoose
Jafnvel einhverju sem ég er að gleyma
En þetta var svo sem hefðbundin fuglaskoðun í Heiðmörk nema hvað í restina vorum við í kapphlaupi við myrkvið en í lokin var orðið ansi dimmt en svo sem bara gaman að því
Sé einhver nenna hjá einhverjum má skoða myndur hjér
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)