
Rétt eins og
hér var auglýst var ætlunin að halda áfram með sitt
35.tinda verkefni núna í gær. Þá var skundað upp á Lágafell við Sandkluftavatn í skammdeginu. Leiðangursfólk þennan dag voru:
Stebbi TwistKrunkaÞrátt fyrir nokkra metra á sek. tókst að komast á toppinn og þar með sigra tind nr:28 í röðinni. Ekki nema 7 eftir.
Hér má svo skoða myndir út túrnum.
Svo um síðustu helgi var haldið
norður þar sem ætlunin var að skíða eins og enginn væri morgundagurinn. En ekki voru norðanmenn á þeim buxunum að hleypa
mér, aðkomumanninum, á skíði svo
gönguskíði urðu bara duga á
messudag. Það var hressandi og gaman að því.
Á laugardeginum var svo haldið í austurátt yfir í
S-Þingeyjarsýzlu og til
Húsavíkur. Þar var rölt upp á bæjarfjall Húsvíkinga þ.e
Húsavíkurfjall í ljósaskiptunum. Svona til gamans má geta að þar voru á ferðinni þau:
Stebbi TwistKrunkaHér má síðan skoða myndir frá því
Svo er bara spurning hvort þetta sé búið í ár eða hvort maður nái einu til viðbótar fyrir áramót. Annars er bara planið að fara næzt þann 2.jan á nýju ári. Nánar auglýst síðar
Kv
Stebbi Twist