Rétt eins og
VJ bendir
hér á hefur verið lítið
líf á hér á
V.Í.N.-síðunni undanfarið.
Ætli það sé ekki rétt að
maður reyni að beita þeirri litlu
skyndihjálparkunnáttu sem maður hefur yfir að búa og geri tilraun til þess að hnoða smá lífi í þetta allt saman.
Annars er það helst að frétta að
utanfararhópur fór til
Bandaríkjanna Norður Ameríku nú 28.sept s.l. Reyndar hefur
helmingurinn nú þegar skilað sér aftur á
ættjörðina. Spurning hvort þar fari betri helmingurinn, ætli það sé ekki bezt að láta aðra dæma um það.
Hinn hlutinn er enn í US&A og er í rómantískriferð í sólinni og svitanum á
Floridaskaga. Eru nú reyndar væntanleg á klakann eftir ekki svo langan tíma. En hvað um það.
Kannski fyrir þá örfáu sem ekki enn hafa skoðað myndirnar úr fyrsta hluta ferðarinnar, frá
Skáldinu, þá er hægt að skoða þær
hérna.
Fyrr nefndur kappi spyr líka hvort eitthvað nýtt sé að
frétta af stóra Matarveizlumálinu. Rétt eins og alþjóð er kunnungt þá fer hún fram dagana 26-28.okt n.k. Eftir því sem
Litli Stebbalingurinn veit bezt þá er ekkert nýtt að
frétta. En þó ber að taka því með fyrirvara þar sem kauði er þekktur fyrir að
frétta allt saman langsíðastur. Ef einhverjar
fréttir eru þá má alveg koma þeim á framfæri í þar tilgerðu athugasemdakerfi. Þó það sé vissulega nokkuð til í því sem tjéllingin sagði eitt sinn ,,að engar fréttir væru góðar fréttir´´.
En þangað til eitthvað nýtt gerist þá skulum við gæða okkur á
þessuAð lokum er kannski rétt að minnast á það að nú rétt í þessu var
hluti af göngudeildinni að ræða hugsanlegan hreyfing um komandi helgi. Ekki er frekar fast í hendi hvorki með
tímasetningu né ákvörðunarstað. Líklegast mun það ráðast af
veðri og vindum. Áhugasamir velkomnir með. Ekki svo vitlaust að láta reyna á nýkeyptu í útlöndum græjunar. Svona fyrir þá sem það á við.
Fleira var það vart í bili.
Þangað til næzt.