Þá er komið að skammti vikunnar:
Stebbi Twist
Eldri Bróðurinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Plástradrottingin
Hvergerðingurinn
Willy
Gullvagninn
Þar hafið þið það
Kv
Skráningardeildin
miðvikudagur, mars 14, 2012
mánudagur, mars 12, 2012
Snjóhús og leitaræfing

Nú um síðustu helgi hélt Litli Stebbalingurinn með núbba úr FBSR upp í Bláfjöll. Þar sem ætlunin var að grafa snjóhús síðan sofa í því og hafa síðan snjóflóðapælingar á laugardeginum svona áður en halda skyldi heim á ný. Með í för voru tveir gildir limir V.Í.N. en það voru:
Stebbi Twist
Eldri Bróðurinn
Þrátt fyrir að þetta hafi bara verið upp í Bláfjöll þá tókst okkur að rata í smá ævintýri á leiðinni með að festa rútuna á Bláfjallavegi. En með samstilltu átaki hafðist að losa hana. Svo var skundað upp í Eldborgargil og grafið þar snjóhýsi til að gista í. Skemmst er frá því að segja að maður átti ansi náðuga nokkra tíma í svefni þar. Á laugardagsmorguninn fór í að grafa snjóflóðaprófíla og æfa sig í að gjöra samþjöppunarpróf. Eftir hádegismat, þegar logið var komið á ágætis hreyfingu og snjókoman búin að breytast í slyddu og síðan rigningu, var haldið til móts við langferðabílinn til að halda heim á leið.
Messudagurinn fór svo í leitaræfingu og pælingar. Fyrir þá sem hafa áhuga má skoða myndir frá helginni hér
miðvikudagur, mars 07, 2012
Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferðalistinr:10
Jæja gott fólk nú er miðvika og slíkt þýðir bara eitt. Já, þið vitið hvað og hér kemur það.
Persónur:
Stebbi Twist
Eldri Bróðurinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Plástradrottingin
Hvergerðingurinn
Leikendur:
Willy
Gullvagninn
Já, allt að gerast greinilega því tvær sálir hafa bæst í hópinn og er það vel. Svo nú bíðum við bara spennt hvað gerist á næztu vikum
Kv
Skráningardeildin
Persónur:
Stebbi Twist
Eldri Bróðurinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Plástradrottingin
Hvergerðingurinn
Leikendur:
Willy
Gullvagninn
Já, allt að gerast greinilega því tvær sálir hafa bæst í hópinn og er það vel. Svo nú bíðum við bara spennt hvað gerist á næztu vikum
Kv
Skráningardeildin
þriðjudagur, mars 06, 2012
Skíðað í Skálafelli: Part 2
Eins og sjá má í tilkynningu hér í þarnæztu færzlu fyrir neðan var ætlunin að hita upp fyrir Agureyrish um síðustu helgi og það helst í Skálafelli. Eins og áður hefur verið sagt frá þá tókst það á laugardeginum og nú skal tilkynna að það hafðist líka á messudag. Það í Skálafelli líka. Aðeins fjölmennara var á messudag og einkar ánægjulegt að sjá fulltrúa yngri kynslóðar skíðadeildar í Fellinu. En þau sem létu sjá sig voru:
Stebbi Twist
Krunkhildur
Eldri Bróðurinn
Yngri Bróðurinn
Erna
Maggi á móti
Elín
Andrés Þór
Birgir Björn.
Hetja dagsins var svo Maggi Brabra fyrir að draga Eldri Bróðurinn að landi eftir að kauði hafði skítið hressilega í rjómann með að gleyma gaskútnum sem við komust það þegar átti að hefja grill. En engu að síður eiga báðir ofangreindir aðilar þakkir skildar fyrir grill og að redda gasinu. En höfum þetta ekki lengra í bili og bendum bara á myndir hér
Kv
Skíðadeildin
mánudagur, mars 05, 2012
Skíðað í Skálafelli: Part 1
Eins og sjá má hér á færslunni fyrir neðan þá var ætlunin að hefja upphitun fyrir skíða-og menningarferð til Agureyrish nú um rétt liðna helgi. Eftir smá vangaveltur var kýlt á að skella sér í Skálafell á laugardag og voru það fjórar manneskjur sem skunduðu upp í Mosfellsdal til þess að ástunda skíðamennsku. En það voru:
Stebbi Twist
Krunka
VJ
Eldri Bróðurinn
Þetta var sérdeilis aldeilis prýðilegt en undanbrautarfæri var frekar hart. Krunka æfði sig aðeins í Þelamerkursveiflunni og þegar matarhlé var þá var grillið tekið fram og skella á grindina pullum og samlokum. En allavega ef fólk hefur áhuga þá má skoða myndir frá laugardeginum hér
Kv
Skíðadeildin
fimmtudagur, mars 01, 2012
Upphitun um helgina?

Rétt eins og glöggir lesendur hafa eflaust áttað sig á þá er ekki nema hálfur mánuður eða 14.dagar sem gera tvær vikur í hina árlegu skíða-og menningarferð til Agureyrish. Nú spyr maður; er ekki kominn tími á smá upphitun svo fólk komi nú ekki til með að líta út fyrir að vera meira fífl en venjulega. Reyndar er ekkert hægt að gera fyrir þá sem verða á telemarkskíðum því þeir líta alltaf út fyrir að vera fífl. Í bezta falli asnalegir. En hvað um það.
Skíðdeildin fékk þá flugu í höfuðið að reyna smala fólki í fjöllin um komandi helgi í hitting og skíðun. Hvort sem það er Bláfjöll eða Skálafell nema hvort tveggja verði. Kannski væri svo ekki vitlaust að grípa eins og eitt grill með og brúka það til upphitunnar á sunnlenskum pulsumNú væri gaman að fá smá álit þjóðarinnar um hvort það hafi áhuga á slíku og þá hvorn daginn, báða dagana eða hvot það vilji heldur Bláfjöll eða Skálafell. Koma svo og tjá sig. Skiptir þá engu hvort það er boðun eða afboðun
Kv
Skíðadeildin
miðvikudagur, febrúar 29, 2012
Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferðalistinr:9
Nei, detta nú ekki af mér allar dauðar lýs. Það er barasta farið að nálgast tuginn og það á slíkum merkisdegi. Sem senn er liðinn og kemur aldrei aftur ólíks Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð sem kemur alltaf aftur. Ár eftir ár eftir ár. Svo er svona listi líka sem birtur vikulega frá áramótum fram að gleðinni miklu. Eins og glöggir lesendur hafa án efa þegar áttað sig á. En nóg um slíkt hjal og komum okkur að lista vikunnar.
Bræður og systur:
Stebbi Twist
Eldri Bróðirinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Austur og vestur:
Willy
Gullvagninn
Lítið nýtt að frétta af austurvígstöðunum en það er bara að bíða og sjá hvaða vitleysa kemur í næzta pistli
Kv
Skráningardeildin
Bræður og systur:
Stebbi Twist
Eldri Bróðirinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Austur og vestur:
Willy
Gullvagninn
Lítið nýtt að frétta af austurvígstöðunum en það er bara að bíða og sjá hvaða vitleysa kemur í næzta pistli
Kv
Skráningardeildin
þriðjudagur, febrúar 28, 2012
Sundmannakláði
Nú um rétt svo nýliðna helgi var FBSR með ferð, líkt og Litli Stebbalingurinn hefur farið á tveggja vikna fresti í vetur, að þessu sinni í Landmannalaugar og voru eiginlega allir ferðamátar notaðir til að komast til og frá áfangastað. Það sem má helst teljast til tíðinda að þarna voru fleiri V.Í.N.-verjar en venja er og er það vel. Gaman var að sjá VJ koma aftur með í ferð. En hvað um það. Sá sem þetta ritar arkaði innúr á plönkum ásamt spúzzu sinni og nillum inní en þeim hóp var Danni Litli. VJ og Björninn skröltu á Rauðalæk og góðkunningi vor hann Billi var á færibandi. Virgill notaði líka tækifærið til dusta rykið af fjallaskíðunum sínum
Óhætt er að segja að þetta hafi verið góð helgi á fjöllum og allir sáttir. En eitt má þó segja að sé ekki nógu gott en það umferð í heimsbikarmótinu í sprettlellahlaupi. Eftir því sem bezt er vitað var þátttaka 0. Amk mætti undirritaður ekki einu sinni til keppni. Aðrir voru í skjólfatnaði.
Fyrir áhugasama má skoða myndir frá helginni hér
miðvikudagur, febrúar 22, 2012
Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferðalistinr:8
Skammtur nr:8 er víst staðreynd þessa vikuna. Þrátt fyrir að lítið sé að gerast þá hellum við bara okkur í málið.
Fólk:
Stebbi Twist
Eldri Bróðirinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Bílar:
Willy
Gullvagninn
Engar fréttir eru víst góðar fréttir. Þetta verður þá ekki lengra þessa vikuna
Kv
Skráningardeildin
Fólk:
Stebbi Twist
Eldri Bróðirinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Bílar:
Willy
Gullvagninn
Engar fréttir eru víst góðar fréttir. Þetta verður þá ekki lengra þessa vikuna
Kv
Skráningardeildin
miðvikudagur, febrúar 15, 2012
Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferðalistinr:7
Þá er komið að vikuskammtinum fyrir þá sem þess þurfa, já og hinna alla líka. Alla vega er það víst að biðin hún styttist með hverri vikunni og hér eru tölur úr Reykjavík norður:
Mennskur:
Stebbi Twist
Eldri Bróðirinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Bílskar:
Willy
Gullvagninn
Já, ekkert nýtt tídd af austurvígstöðvunum en það kemur að því. Bíðið þið bara og farið að huga að undirbúnings-og eftirlitsferðum innúr á meðan
Kv
Skráningardeildin
Mennskur:
Stebbi Twist
Eldri Bróðirinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Bílskar:
Willy
Gullvagninn
Já, ekkert nýtt tídd af austurvígstöðvunum en það kemur að því. Bíðið þið bara og farið að huga að undirbúnings-og eftirlitsferðum innúr á meðan
Kv
Skráningardeildin
þriðjudagur, febrúar 14, 2012
Á kunnuglegum slóðum

Um nýliðna helgi brá Litli Stebbalingurinn sér á gönguskíði og nú til nokkra daga. Kemur vart neinum á óvart að ferð þessi var farin með Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík. Ætlunin var að fara frá Lyngdalsheiðarvegi upp með Klukkutindum, gegnum Þjófahraunið og að Hlöðuvöllum. Koma síðan niður hjá Úthlíð. Þetta gekk eftir að meztu leyti nema í stað þess að koma niður hjá Úthlíð var komið niður í Haukadal. En alla vega þá er fyrir áhugasama hægt að skoða myndir frá helginni hér
miðvikudagur, febrúar 08, 2012
Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferðalistinr:6
Stebbi Twist
Eldri Bróðirinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Willy
Gullvagninn
Eldri Bróðirinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Willy
Gullvagninn
þriðjudagur, febrúar 07, 2012
Í botni með drottni
Smá uppfyllingarefni hérna svona á milli skráningarlista.
En alla vega þá fór Litli Stebbalingurinn um þar síðustu helgi inní Botnsdal með núbbunum og þess má líka geta að Eldri Bróðurinn var líka með för. Var það vel. En ef einhver hefur áhuga þá eru myndir frá helginni hérna
miðvikudagur, febrúar 01, 2012
Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferðalistinr:5
Þá er kominn nýr mánuður og alltaf styttist í Helgina. Svo er líka komin miðvika svo það táknar bara eitt og það er skráningarlisti vikunnar fyrir Helgina. Það er ekkert nýtt að frétta af austurvígstöðvunum og Stalíngrad er ennþá á sínum stað. En hvað um það. Svo sem nóg komið af bulli og tími til kominn að efni vikunnar.
Listi særða og fallina:
Stebbi Twist
Eldri Bróðirinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Fólksvagnar:
Willy
Gullvagninn
Fleira var það ekki þessa vikuna og aftur á sama tíma eftir viku
Kv
Skráningardeildin
Listi særða og fallina:
Stebbi Twist
Eldri Bróðirinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Fólksvagnar:
Willy
Gullvagninn
Fleira var það ekki þessa vikuna og aftur á sama tíma eftir viku
Kv
Skráningardeildin
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)