laugardagur, mars 09, 2013

Gef mér Fimmu

Nú styttist í vorjafndægur. Þegar þær bresta á þá eru bara 3 mánuðir í sumarsólstöður og lengsta dag ársins. Líkt og vel flestir af dyggum lesendum þessara síðu ættu að vita hefur sú skemmtilega hefð skapast að rölta yfir Fimmvörðuhálsinn aðfararnótt laugardags um Jónsmessuhelgina. Slíkt hefur verið gjört nær árlega frá því herrans ári 2002 reyndar með tveim undantekningum.

Nú í pistli þessum er ætlunin að rifa upp för vor árið 2006.

Ferðin hófst á venjubundinn hátt á fimmtudagskveldi er haldið var inní Bása á tveim bifreiðum til að ná tjaldstæði og skilja eina sjálfrennireið þar eftir en á fimmtudagskveldinu fóru innúr:

Stebbi Twist
Jarlaskáldið

á Willy


Snorri hinn aldni
Kristján 

á Galloper

Við fundum hið sæmilegasta stæði og skutluðum upp nokkrum seglskýlum, slátröðum einhverjum bjór Bakkus til heiðurs áður en haldið var til baka í borg óttans

Síðan rann upp flöskudagur bjartur og fagur. Þar sem fólk sinnti sínum skyldum og verðmætasköpun. Ætli það hafi ekki verið svo um það leiti sem kveldfréttir voru að hefjast á Rás1 sem lagt var af stað úr bænum en þeir sem fóru völdu sér ýmsar aðferðir og upphafsstaði. En þarna voru

Hafliði
Stebbi Twist
Jarlaskáldið

á Sigurbirni


Snorri Perri
Katý

á Galloper

Þessir allir gengu og hófu för við Skóga

VJ
Jökla-Jolli

á Hispa

og fóru þeir á hjólheztafákum yfir Hálsinn með upphafsstað í Básum

...og lokum voru það

Maggi Móses
Halli Kristins sem er með ykkur á Bylgjunni

á Barbí

og fóru þeir gangandi skerjaleiðina upp á E-15, skíðuðu síðan niður.


Allt hafðist þetta nú og hefðbundið. Skálað í bjór við Fukka heitinn og að sjálfsögðu á Kattahryggjum. Við mætum hjólheztaköppunum og þar sem þeir enduðu á Skógum þá spöruðu þessir heiðursmenn okkur bíltúrinn á laugardeginum með að ferja Sibba og Galloper aftur inní Bása. Maggi og Halli komust líka óbrotnir niður og allir skáluðu í bjór í Básum snemma á laugardagsmorgni


Á laugardeginum var vaknað eins og lög gera ráð fyrir. Síðan var haldið yfir í Húsadal þar sem kappar skelltu sér í Þórslaug og enduðu svo í gufu. Ansi hressandi. Síðan var bara haldið aftur yfir í Bása og farið að undirbúa grillið. Síðdegis svo á laugardag bættist í hópinn er Elín Rita, Andrés Þór (í sinni fyrstu Merkurferð) og Adela komu á svæðið á Snjóólfi IV. Ekki man sagnaritari nákvæmlega hvernig við Maggi Brabra sótti Barbí en einhverntíma var það gjört. Er það vel. En aftur á móti þurfti svo Jökla-Jolli að yfirgefa samkvæmið og skrölti hann til byggða á Hispa hinum góða.  Síðan var allt bara hefðbundin aðalfundarstörf og er það vel.
Mismikil þynnka á messudegi þegar haldið var heim. Góð ferð og allir sáttir með sinn ferðamáta
Myndir frá þessari góðu helgi má sjá hér

4 ummæli:

  1. Það er ekki að spyrja að hafsjó minninganna. En á að halda í hefðina í ár? Ég er búinn að lofa að teyma tengdafjölskylduna yfir Hálsinn í sumar, jafnvel um Jónsmessuhelgina, væri gaman að vita hvort einhverjir aðrir hafa svipað í huga.

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus12:40 e.h.

    Það þarf ekki marga til svo Litli Stebbalingurinn sé geim
    Hef nú ekkert heyrt en amk hafði ég hug á því að halda í hefðina og rölta. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir með, hvort sem er í röltið eða bara með í Bása

    Kv
    Stebbi Twist

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus9:31 e.h.

    Ja ef fólk ætlar að skunda yfir þá er nú ekki leiðinlegt að skottast með.
    Kv. Eldri

    SvaraEyða
  4. Þá er komið lágmark í göngu

    SvaraEyða

Talið!