þriðjudagur, apríl 13, 2004

Þrátt fyrir að skæður öræfaótti hafi skotið sér niður meðal manna og kvenna innan V.Í.N. nú um páskana þá lét sjálfskipaður miðhópur skemmtinemdar undirbúningsnemdar eftirlitsdeildar þennan öræfaótta hafa á sig áhrif. Ekki var hægt að gera heilbrigðiskönnun að þessu sinni vegna öræfaótta heilbrigðisdeildar V.Í.N. Að morgni flöskudagins langa var lagt í fyrstu undirbúnings- og eftirlitsferðar vegna fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferðar 2004 í blíðskaprveðri. Mæting var við Lélegt á Vesturlandsvegi kl:10:00 á morgni flöskudags langa, frekar ókristnilegur tími, þarna voru ferðalangar samankomir. Hópurinn saman stóð af Stebba Twist, Jarlaskáldinu, Gamla perranum og var fararskjóti þeirra Willy ásamt Magga Brabra og spússu hans frú Andrésson og voru þau á Lúxa. Eftir að sumir höfðu gætt sér á pylsu á meðan aðrir skoðuðu Ferrarifána var loks hægt að koma sér af stað. Ekið var þjóðveg 1 sem leið lá uns við komum á Hvolsvöll, þó var hápunktur ferðar okkar á leið á Hvolsvöll þegar við fórum yfir nyju Þjórsárbrúna og er við komum á slóðir lessumyndbandsins. Hvað um það. Þegar við renndum í hlað á Hlíðarenda var þar heil hersing af slyddujeppum og endalaus bið við bensíndæluna. Til að stytta sér biðina fékk maður sér bara pylsu og spjallaði við Runólf ásamt því að skoða nýju dekkinn hans og felgurnar. Rétt eftir hádegi var svo Hvolsvöllur loks yfirgefin með stefnuna á Þórsmörk. Leið lá uns við komum að bílastæðinu við Stóru-Mörk þar sem við frelsuðum loft úr hjólbörðum og nyttum tækifærið til ljósmynda og settum sumar af myndunum strax á netið. Vegurinn var fínn til að byrja með enda nýheflaður og búið að bera í hann. Þeir lækir sem voru á vegi okkar voru ekki mikið vandamál enda rann lítið eða ekkert vatn í þeim. Þegar við komum að efra vaðinu við Lónið var bílunum stillt upp til myndatöku með síminnkandi Gígjökul í baksýn. Þarna var veðrið slíka bongóblíðan og gaf okkur forsmekkinn að því sem koma skal í sumar. Ekki var lónið mikið mál enda varla hægt að segja að það hafi mikið vatn runnið til sjávar þarna úr Lóninu þennan dag. Nóg um það. Næst lá leið okkar yfir Steinholtsá þar var nú sama sagan þ.e ekki var hún mikið mál. Kannski svolítið þröng en það er bara betra. Eftir því sem nær dró Þórsmörkinni þá varð vegurinn alltaf verri og verri og á köflum má segja að engin hafi verið vegurinn. Hvanná rann að þessu inni aðeins inn á veginn og hefur fært sig vestar. Eftir að yfir Hvanná var komið var ansi skemmtilegt að keyra þarna á aurunum því þetta minnti mann vel á Stóra Sand. Nú var bara málið að kíkja yfir í (Blaut)Bolagil til að kanna aðstæður fyrir fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð. Krossá rann að þessu sinni frekar sunnarlega og eiginlega eins langt frá (Blaut)Bolagili og frekast getur gert með góðu móti. Það var fundið vað þrátt fyrir að ekki hafi verið mikið vatn í Krossá þennan dag þá rann hún þröngt og bakkarnir voru svolítið háir. Allir komust þó yfir og ekkert því til fyrirstöðu að sinna okkar eftirlitsskyldum þarna í (Blaut)Bolagil. Aðstæður voru kannaðar. Bekkurinn er á sínum stað og nánast gróinn fastur. M.a tók undirritaður sig og merkti sér tjaldstæði fyrir fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð, þar sem Stebbalingurinn ætlar að klára þær. Ekki ætti að vera vandamál með varðeldin, þ.e.a.s ef aðstæður breytast ekki mikið fram að fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð. Við fundum líka stað fyrir tramolínið en það verður eingöngu fyrir gjafvaxta stúlkur á kjöraldri þar sem þær koma til að hoppa á í bikini einum klæða. Við höfumst líka handa við að byrja að slétta út völl þarna á eyrunum þar með haldnir verða knattleikir þar sem allir þátttekendur eru kvenkyns og verða þær látnar keppa á strengnum einum klæða. Ef einhverjar fara að mótmæla því þá hefur keppnisstjórn ákveðið að láta þær fara líka úr strengnum og vera berar að neðan líka. Blautbolakeppninn mun svo fara fram á sínum venjulega stað. Þess má geta að ennþá er hægt að skrá sig til þátttöku í þessum keppnum og leikjum í commentum hér fyrir neðan. Eftir að hafa gert þessar úttektir var bara ein eftir og það var að fallprufa kamarinn. Það verður barasta að segja að þær eru djúnmjúkar íslenskuhægðirnar í svona stórbrotinni náttúru. Þegar öllum eftirlitskyldum var lokið var komið sér yfir í Bása við stuttri við komu í Langadal. Í Básum var aðeins rúntað og ekki stoppað fyrr en vegurinn endaði. Það var gaman að keyra og sjá í hvaða ham Krossá hefur verið í því við afleggjarann í Strákagil er ekkert nema urð og grjót þar sem veginn vantar á góðum kafla. Eftir að við komum svo aftur í Bása kvöddum við þau hjónaleysin og komum okkur fyrir í skálanum í Básum. Við heldum svo áfram okkar eftirlitsskyldum að þessu sinni fyrir Fimmvörðuhálsgönguna um Jónsmessuna. Við skoðuðum þar sem við höfum tjaldað í síðustu Jónsmessuferðum okkar og leit það allt vel út. Eftir að hafa gengið á Hattinn og virt fyrir okkur Bása úr lofti töltum við sem leið lá í Strákagil og komum við í Einarslundi. Á vegi okkar í Strákagil sáum við rjúpu sem var að ögra okkur með að segja ,,og hvað ætlið þið að gera í því?´´. Á leiðinni til baka gerðum við burðarþolspróf á göngubrúninni við Strákagil og stóðst brúin prófið. Þannig að sumir ættu að geta farið þarna yfir í sumar rólegar. Þegar við komum til baka var hafist handa við grill og að sjálfsögðu drukkinn bjór. Fátt gerðist svo eftir mat nema bjór og wisky var drukkið og spjallað við fullt af fólki sem var þarna innfrá. Suma hafði maður hitt áður og aðra ekki.

Maður vaknaði svo fyrr heldur maður hafði vonað vegna krakkaskara sem þarna var. Það var bara eitt að gera við því, draga svefnpokan yfir hausinn á sér og halda áfram að sofa. Það var svo ég sem svaf lengst en var samt kominn á lappir fyrir 11:00. Það var lítið hægt að gera eftir morgunmat, messu og mullersæfingar nema bara að fara að koma sér í bæinn. Enda var þarna kominn rigning og ekki spennandi að hanga þarna. Eftir að hafa gert upp við skálavörðinn og fallprófað kvennaklósettið var lagt af stað heim. Hugmynd var að koma við á Seljavallarlaug og kanna þar sem lessur en vegna veðurs var þeim áformum frestað. Loft var endurheimt í dekkinn á Hvolsvelli og svo var ætlunin að fara í sund á Laugalandi í Holtssveit. Aldrei þessu vant þá vorum við of snemma og tæplega klst í að drullupollurinn opnaði. Ætlunin var svo að koma við í Hnakkaville og fara þar í ríkið og kaupa mikið. Þegar við renndum í hlað í Hnakkaville var þar bara geðveiki svo við tókum þá pólitísku ákvörðun að fara bara í Heiðrúnu. Það þurfti að vísu að koma við í ÓB og þegar við komum þanngað hafði einn snillingurinn dælt diesel á bensínbílinn sinn. Eftir að hafa gefið Willy að drekka var komið sér til Reykjavíkur. Þar með lauk páskaferðinni 2004 sem var um leið undirbúnings- og eftirlitsferð. Þarna innfrá er allt eins og það á að vera. Svo þetta lofar allt góðu.

Að lokum er rétt að geta þess að fljótlega fer fram samkeppni fyrir þá kvenkyns farþega sem lýst hafa áhuga að fara með Willy í (Blaut)Bolagil um fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð. Þarna þurfa keppendur að koma fram í sundfatnaði, án sundfatnaðar og í svínabúning fyrir framan dómnefnd. Sem fyrr segir þá eru vegleg verðlaun í boði eða far um fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferðarhelgarinar.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Talið!