fimmtudagur, október 24, 2013
Skundað um bæ
Helgin er svo lengi að líða og loks kom þriðjudagur. Við byrjuðum á því að rölta yfir til langaömmu Skottu til að snæða þar brunch. Eftir að hafa nært sig var haldið í bæjarferð þar sem Lindex og H&M biðu manns, ekki gaman. En um auðvitað nýtum við tækifærið og skoðuðum miðbæinn og Gavlegeiturnar sem þarna eru útum allt. Svo var náttúrulega nördinn í manni að virða fyrir sér hjólheztamenninguna þarna. Það kom skemmtilega á óvart hvað bærinn þarna er flottur og maður gat líka rölt skemmtilega leið þó svo maður hafi kannski ekki verið á skemmtilegasta tímanaum en samt er haustið skemmtilegur tími með sínum litum og föllnu laufum. Svo rakst maður líka á furðulega bíla en það er bara gaman.
Síðan um kveldið bauð langaamman aftur til matar. Restin fór bara í létt spjall, smakk á sænskum bjór og afslöppun.
Sé áhugi fyrir hendi má skoða myndir hér
miðvikudagur, október 23, 2013
Fyrirmyndarríkið Svíþjóð
Vikuna 14-20. október s.l skrapp litla Twist fjölskyldan í Svíareisu. Þar sem megin tilgangurinn var tvíþættur annars vegar að heimsækja skyldfólk Krunku og Skottu sem og að heilza upp á sendaherrahjónin í Svíþjóð þau Tiltektar-Togga og dr.Dillu.
Það var sum sé mánudaginn (bezta dag vikunnar) sem við rifum okkur á fætur fyrir allar aldir og heldum sem leið lá í Sandgerðishrepp. Sveitakráin þar klikkar aldrei. Allt var svo sem klassíkst og Skotta stóð sig vel í sínu fyrsta millilandaflugi og ekki var verra að við fengum heila sætaröð fyrir okkur. Þegar til draumaríkisins va komið tók við rúmlega klst. lestarferð til Gavle, (mikið eru lestir leiðinlegur ferðamáti amk mv króna per km). Í Gavle tók ömmusystir Skottu á móti okkur og við röltum svo í ca 10 min til dvalarstað okkar næztu daga. Við tók svo bara afslöppun enda flestir syfjaðir eftir ferðalagir.
En alla vega þá má skoða myndir frá deginum hér
miðvikudagur, október 09, 2013
Agureyrish haust
Við hjónaleysin ásamt Skottu skruppum nú um síðustu helgi norður til Agureyrish. Fátt svo sem um það að segja. Áttum stuttan fund með sendiherrahjónunum, kíkti upp í Hlíðarfjall og síðan bara haft það notalegt þarna. En það er farið að hausta þarna og rúmlega það. Eitthvað lítið snjóaði þarna aðfararnótt laugardags og er það vel. Smá föl komin í Hlíðarfjall ásamt sköflunum sem aldrei hafa horfið þar síðan síðasta vetur. En það er vonandi stutt í opnun þar ásamt því að snjór fari að safnast þarna í fjöllunum og kannski að maður komist þar á fjallaskíði. En hvað um það
Nenni einhver að skoða myndir frá helginni má gjöra það hjer
fimmtudagur, september 26, 2013
Brekkubústaður-Messudagur
Messudagur rann upp og ekkert svo sem merkilegt við það. Þetta var auðvitað brottfarardagur svo fljótlega eftir morgunmat var hafist handa við þrif. Þetta gekk allt saman og síðan var bara raðað í bílinn og lagt í´ann til höfuðborgarinnar. Veðrið var nú með bezta móti og sá maður að Hekla var orðin hvít, vonandi styttist í fjallaskíðatímabilið. En það var bara ekið styðsta leið í bæinn og ekkert merkilegt við það
En það má skoða þessar örfáu myndir frá deginum hér
miðvikudagur, september 25, 2013
Brekkubústaður-Laugardagur
Það kom nú fáum á óvart að laugardagrinn skyldi koma að morgni. Eitthvað lágu skýin lægra en spár höfðu sagt til um og skýjað var á toppi Efstadalsfjall. Þó svo að ætlunin hafi kannksi ekki verið að ganga á það þennan dag, enda hvorki á jeppa né með fjallahjólið meðferðis. Litla Stebbalingnum fékk þá flugu í hausinn að ganga upp á Efstadalsfjall einn daginn. Hjóla svo niður í Miðdal og þaðan Kóngsveg í pottinn í bústað. Ekki amalegt það.
Við höfðum sett stefnuna á helgasta stað landsins þ.e. Þingvelli og rölta þar upp á Miðfell, sem er einmitt fjórða fell Skottu. Gaman að því. Á leiðinni yfir þurftum við að renna við í Mínus (eins og Snorri hinn aldni perri kallar búlluna) á Laugarvatni. Gangan upp á Miðfell gekk bara vel enda auðvelt fjall/fell sem hentar öllum fjölskyldumeðlimum sé áhugi fyrir slíku. Öll þrjú náðum toppnum og var útsýni þaðan alveg hið prýðilegasta og nutum við haustlitana þaðan. Þegar niður var komið var lengri leiðin tekin heim enda Skotta fljót að sofna og vildum við leyfa henni bara að lúlla þarna. Líkt og kveldið áður kíktum við á tvö tjaldstæði, bæði við Reykholt/Aratungu og við Faxa. Tjaldsvæðið við Reykholt virðist vera hið prýðilegasta og öll aðstaða til fyrirmyndar þar, sundlaug, leiktæki og kaffihús/bar við höndina ásamt einhverju heimaræktuðu grænfóðri fyrir áhugasama. Tjaldsvæðið við Faxa er svo heldur berangurslegra en er við nokkuð nettan foss og þar væri örugglega hægt að renna fyrir lax á spún eða maðk. Svo er auðvitað hægt að taka flotta hjólhestahring þarna út frá báðum þessum stöðum. En hvað um það. Þarna var svo Skotta vöknuð svo við ökum bara í bústaðinn enda beið okkur þar potturinn.
Eftir pottaferð var svo farið að huga að matseld og klikkaði nautakjetið frá Matta Skratta ekki frekar en fyrri daginn. Svo var auðvitað eftirréttur Royal súkkulaðibúðingur að sjálfsögðu með rjóma. Kveldið fór svo bara í sjónvarpsgláp Indina Jones í ég veit ekki hvaða skipti en gaman að því samt. Svo var bara farið einhvern tíma að sofa eftir góða afslöppun
En vilji einhver sjá hvernig dagurinn fór fram má gjöra það hér
þriðjudagur, september 24, 2013
Brekkubústaður-flöskudagur
Nú um síðastliðnu helgi fórum við Twistfjölskyldan í afslöppun í bústað í Brekkuskóg. Kannski nú ekki beint ætlunin að lýsa því hér hvernig við höfðum það en kannski að segja aðeins frá því litla sem við gjörðum í von um að gefa kannski fólki einhverjar hugmyndir um ferðaval í ókominni framtíð.
Við rúlluðum úr bænum í eftirmiðdegi föstudags og aldrei þessu vant þá var ekið yfir Hellisheiði. Suðurlandið tók ágætlega á móti okkur og þar sem Skotta var sofandi var bara tekið lengri leiðin í Brekkuskóg og hugsanleg tjaldstæða næzta eða þar næzta sumars skoðuð. Maður er alltaf að leita að einhverju nýju og með hugan við áhugamálin. En alla vega þá kíktum við aðeins á tjaldsvæðið við Brautarholt og lofar það góðu. Ekki er svo verra að það er sundlaug í bakgarðinum. Þar mætti taka hjólatúr nú eða skreppa á Vörðufell. Svo lá leiðin í gegnum Laugarás en þar einhverstaðar rumskaði Skotta svo ekið var bara upp í Brekkuskóg framhjá Syðri Reykjum, þar er einmitt hjólahringur sem hægt væri að taka einn góðan veðurdag. Svo var bara komið í bústað og þar hófst þetta venjubundna bera dótið inn, koma sér fyrir, láta renna í pottinn og malla síðan flatböku. Kveldið var svo ekki merkilegt en það fór að meztu leyti í sjónvarpsgláp en upp úr miðnætti var potturinn ljúfur og ekki skemmdi stjörnuhimininn fyrir
En alla vega þá má skoða nokkrar myndir frá kveldinu hér
þriðjudagur, september 17, 2013
Four Low
Litli Stebbalingurinn skellti sér síðasta messudag á 30 ára afmælisjeppasýningu Ferðaklúbbsins 4X4, ásamt þónokkrum fleiri gildum limum á ýmsum aldri.. Þar var margt forvitnilegt að sjá og annað frekar venjulegt en þó minnihluta. Reyndar var mér hugsað til sendiherra V.Í.N. í Skandinaviu og á norðurlandi og tók því með myndavél til leyfa þeim að njóta, sem og vonandi fleirum. Líklegast meira spennandi en endalausar Flubbaferðasögur. En hvað um það.
Hér má skoða misgóðar myndir frá messudag
Kv
Jeppadeildin
mánudagur, september 16, 2013
Haustæfing
Veit að þetta kemur þessari síðu og félagsskap kannski ekki mikið við en hvað um það. Nú síðasta laugardag efndi Flugbjörgunnarsveitin í Reykjavík til haustæfingar sunnan við Helgafell í Hafnarfirði. Þar tóku tveir gildir limir V.Í.N. þátt. Hvað um það.
Sé einhver áhugi til staðar að skoða myndir frá deginum þá má gjöra það hér.
fimmtudagur, september 12, 2013
Sumarfrí 2013: Eftirmáli
Líkt og dyggir lesendur muna kom út ýtarleg ferðasaga sumarfríi oss litlu fjölskyldunnar. Þetta var alveg prýðilegasta frí. Litli Stebbalingurinn er amk ekki ennþá sannfærður um að vika í bústað sé góð ráðstöfun á sumarfríi, þó svo að Aðaldalurinn hafi verið prýðilegur en hvað um það. En allavega þá tókst okkur að skoða ýmislegt og koma á nýja staði. Það er amk von þess sem þetta ritar að ferðasagan hafi gefið einhverjum hugmyndir um hvað má skoða í Þingeyjarsýzlum. En það er um gjöra að deila ferðasögum því ef maður rekst á eitthvað nýtt og áhugavert er um að gjöra að láta aðra V.Í.N.-liða vita. Fleira var það svo sem ekki að sinni og kannski vert að minna fólk að það má skoða myndir frá sumartúr oss 2013 hér
Kv
Litla fjölskyldan
þriðjudagur, september 10, 2013
Hjónavígsla og réttir
Nú um síðustu helgi heldum við litla fjölskyldan vestur í Laxárdal til þess að skunda þar í réttir og aðallega skella okkur í tvöfalt brúðhlaup. Við ákváðum það að nýta ferðina í leiðinni og skunda á einn hól í leiðinni og ku sá hól heita víst Sauðafell. Er við komum að Sauðafelli renndum við í hlað þar á samnefndum bæ til spyrjast fyrir um leyfi til að rölta á bæjarfjallið í gegnum landareignina. Var það leyfi auðsótt og í kaupbæti fengum við líka kaffisopa. En þess má geta að þarna er ættargrafreitur Krunku. En að hólaröltinu. Við gengum þarna upp á það sem við höldum að hafi verið toppurinn og gekk það bara aldeilis sérdeilis prýðilega og hafði Skotta það að toppa sinn þriðja hól. Svo var bara brokað niður og að þessu sinni fylgdum við vegslóða sem gaf manni hugmynd með hjólatúr einn góðan veðurdag. Er niður var komið kíktum við aðeins á ættargrafreit Krunku og Skottu á þar hina ýmsu forfeður þó mezt langa, langa og jafnvel langa, langa, langa eitthvað. Svo lá bara leiðin í Laxárdalinn og lítið meira action.
Á laugardeginum var svo réttað. Þetta var mjög svo lítil rétt svona m.v það sem maður er vanur að sjá í Skaftárrétt en líkt og ekki sætasta stelpan á ballinu þá gerði hún sitt gagn. Þarna var meira að segja líka fræga fólkið og Fóstbróðir. Þegar búið var að draga í dilka var bara haldið í bæ og gjört klárt fyrir kveldið skellt sér í steypibað og svoleiðis áður en haldið var í sveitakirkjuna íklæddur gallabrókum og lopapeysu.. Við tókum styttri leiðina þangað og þar fékk maður hugmynd að hjólahring einn daginn þegar maður verður í sveitinni. Bæði settin af tilvonandi brúðhjónum komu svo ríðandi til og frá athöfn sem var bara óhátíðleg og laus við öll formlegheit. Síðan var bara partý um kveldið með fiskisúpu, grilli og bjór. Að vísu reyndi Kári kallinn að setja sitt strik í reikninginn með reyna að feykja samkomutjaldinu út í Hrútafjörð og endaði með því að grillað var inni heztakerru og því miður fengum við ekki folaldakjet. En hvað um það. Fyrirtak engu að síður
Nenni einhver að skoða myndir frá helginni má gjöra það hér (það eru fáar brúðkaupsmyndir þarna)
þriðjudagur, september 03, 2013
Mennngarbústaður: Suður í sæluna
Eftir hefðbundin morgunstörf þ.e var hafist handa við að smúla bústaðinn hátt og lágt. Held að það hafi bara tekist með ágætum. Það var svo um hádegisbil er sjálfrennireiðireiðum var startað og fljótlega ekið af stað. Þegar rúllað var niður af Vatnsskarðinu tókum við fljótlega vinstri beygju og vippuðum okkar af þjóðveg1. Það var nefnilega ætlunin að skrölta Svínvetningabraut og þurfa því ekki að keyra í gegnum Blönduós. Okkur tókst að allstaðar að taka réttar beygjur og enduðum því aftur á þjóðvegi 1 rétt við Stóru Giljá. Þetta er svo sem ágætasta leið og gaman að breyta öðru hverju til. Vonandi bara að einhvern tíma hafi maður tíma til að skoða sig þarna aðeins um. En hvað um það. Er á malbikið var komið aftur tók bara við steindauður þjóðvegakstur. Það var svo hvergi stoppað fyrr en í Borgarnesi og tilefni þess að það var kominn mánudagur skellti maður sér á steikarsamloku enda sú með nautakjeti á.
En alla vega þá eru myndir frá deginum hér
laugardagur, ágúst 31, 2013
Menningabústaður: Vaknað upp í Varmahlíð
Það var vaknað upp á messudegi í Varmahlíð og viti menn úti var suddi. En hvað um það. Við létum það nú ekkert stöðva okkur frá því að taka má sightseening um Varmahlíð á hjólheztunum. Við byrjuðum að skoða tjaldstæðið í Varmahlíð og er það nokkuð lesbískt. Við höfum reyndar mátað það og getum alveg mælt með því. Svo fórum við smá strumpaleið og komum niður hjá Miðgarði, alltaf með hjólheztavagnana í eftirdrægi. Svo hjóluð um við þessar örfáu götur sem eru þarna í þorpinu. Samt alveg merkilegt hvað maður kynnist svona krummaskurðum upp á nýtt þegar maður stígur út úr bílnum og annað hvort gengur um eða hjólar svona bæi og þorp. Ýmislegt sem kemur á óvart. Þarna í miðri húsþyrpingunni er þétt rjóður og inní því miðju er lundur með bekk. Tilvalin staður til að stanza á og fá sér nezti þegar maður er á ferðinni þarna í gegn. Svo hjóluðum við bara aftur upp í bústað og fórum að undirbúa síðdegiskaffi. Seinnipartin lét svo gamla settið hennar Krunku sjá sig og var aðeins fram yfir kveldmat. Í kveldmat var svo skíthopparaþema þ.e læri og bringur. Skyr, rjómi og ber í eftirrétt. Kveldið var svo frekar hefðbundið. Spjall, öl og potturinn.
Sé áhugi fyrir hendi má skoða myndir hér
föstudagur, ágúst 30, 2013
Menningarbústaður: Vígslubiskup á Hólum
Laugardagurinn rann upp og úti var veður vott. Þá var bara ágætt að taka því rólega. Þegar prinsessurnar í bústaðnum höfðu tekið lúrinn sinn var lagt í smá bíltúr. Það var byrjað á því að skreppa á Sauðuppúrkrók eða Sheepriverhook eins og það leggst út á engilsaxnesku. Auðvitað var byrjað á pílagrímsferð í Kaupfélag Skagfirðinga og sem er vinnuveitandi Geirmundar Valtýrssonar. Þvílík gullnáma sem þessi búð er. Allt frá bollasúpum upp í frystikistur. Amk allt það sem við gleymdum því var reddað þarna. Klárt mál að þarna þarf maður að verzla þegar maður á ferð um heztahéraðið
En hvað um það. Eftir þetta rúlluðum við heim að Hólum í Hjaltadal. Þar lögðum við bílunum á tjaldstæðinu, sem var algjörlega tómt, og tókum fram hjólheztana sem og hjólavagnana og fórum í stutta hjólaferð um svæðið. Kíktum á Auðunarstofu, komust að því að Bjórsetrið á Hólum er opið á flöskudögum milli 21-01. Eitthvað sem þarf klárlega að kanna síðar. Snætt nezti við Nýja bæ og síðan bara hjólað til baka að bílnunum. Þarna var bara tími til kominn að dóla sér til baka í hús og fara að huga að öxuldregnu rolluafturháingunni. Að vísu var komið við á Króknum til að freista gæfunnar og lotta eins það heitir víst.
Óhætt er að fullyrða að matseld hafi tekist vel enda ekki von á öðru þegar maður er með Plástradrottinguna í eldhúsinu þann mikla meiztara kokk. Að vísu sá karlpenningurinn um Landmanninn og það sem á honum var. Allur var maturinn góður sem og eftirrétturinn sem aðallega stóð af aðalbláberjum og bláber, með rjóma eitthvað sem klikkar ekki. Svo tók bara spjall, bjór og potturinn við.
Ef einhver nennir og hefur áhuga má skoða myndir frá deginum hér
fimmtudagur, ágúst 29, 2013
Menningarbústaður: Í hánorður
Eins og kom fram í fræzlunni hér að neðan þá voru Plástradrottingin og Hvergerðingurinn svo elskuleg að bjóða oss í bústað til sín sem þau höfðu á leigu í Varmahlíð um síðustu helgi.
Við hjer litla fjölskyldan lögðum af stað úr borg óttans um kaffileytið á flöskudeginum og rúlluðum við í Kjötsmiðjunni til að næla okkur þar í laugardagssteikina. Jöklalamb var lendingin enda eitthvað sem ekki klikkar. Það var svo sem fátt markvert sem gjörðist á för oss norður. Að vísu virtist vera frekar erfitt að fá kaffi í Hreiðavatnskála en þar sá maður að vísu að er komið tjaldsvæði. Kannski smurning um að kanna það næzta sumar, en alltaf gott að vita af nýju og óreyndu tjaldsvæði. Förin helt svo áfram yfir Holtavörðuheiði og svo var gjörður stuttur stanz í sóðasjoppunni Staðarskála þar sem Skotta fékk aðeins að drekka og borða. Við ,,fullorðna" fólkið léttum á okkur og bættum aðeins á bílanammið og jú loks fékk maður kaffi.
Ferðin í Varmahlíð var frekar tíðindalaus enda varla við miklu að búast þegar maður er annars á steindauðum þjóðvegaakstri. En við renndum svo í bústaðinn milli 19-20. Þetta reyndist vera bústaður í eigu sjúkraliðafélags Íslands og hin sæmilegasti bústaður. Amk vel skipulagður. Það var svo fírað upp í Landmanninum til að skutla 200 gr burger á. Annars fór kveldið bara í almennt spjall og sögðu geztgjafarnir okkur frá viku dvöl sinni í Laxárdal. Svo þegar líða tók á kveldið var potturinn mátaður og smakkaðist ölið alveg prýðilega þar.
En allavega þá eru þær örfáu myndir frá deginum sem teknar voru aðgengilegar hér
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)