Published laugardagur, mars 31, 2012 by Stebbi Twist.
Skv
þessari frétt á visir.is ætti fólki að vera orðið óhætt að fara að huga að undirbúnings-og eftirlitsferð inní Bása
|
Published föstudagur, mars 30, 2012 by Stebbi Twist.
Var bara að spá og pæla hvort einhverjir
gildir limir þarna úti séu farnir að hugsa um helgina sem er að bresta á. Amk langar
undirrituðum í eitthvað smá action en þar sem
Litli Stebbalingurinn er svo heppinn að eiga
kveldvaktir þessa helgina er öruggara fyrir hann að halda sig innan hæfilegrar fjárlægðar frá
borg óttans.
Skíði nú eða
hólarölt myndi henta. En sjáum hvað gerist og ef einhverjir hafa hugmyndir eða áætlarnir þá endilega segja frá þeim í skilaboðaskjóðunni hér að neðan
|
Published miðvikudagur, mars 28, 2012 by Stebbi Twist.
Það er svo að nú hittir á sjálfa óhappatöluna
13 (og er líka prímtala, sem er magnað) en við látum það ekkert á okkur fá og höldum að sjálfsögðu ótrauð áfram upphituninni. Þetta eru líka önnur tímamót því hér eftir verður farið að halla í rétta átt að
Fyrstuhelgaríjúlíárshátíðarþórsmerkurferð 2012 og er það vel. Ætli það sé ekki bara kominn tími á að hella sér í listann góða.
Mannverur:
Stebbi TwistEldri BróðurinnKrunkaBergmannFrúinErfðaprinsinnGosiDanni DjúsBilliPlástradrottinginHvergerðingurinnBílverur:
WillyGullvagninnKemur sjálfsagt engum á óvart, amk þeim sem lesa þessa
síðu reglulega og skoða skilaboðaskjóðuna, að engin nýr einstaklingur hefur bæst í hópinn. En það eru all nokkrar vikur til að bæta úr því
Kv
Skráningardeildin
|
Published sunnudagur, mars 25, 2012 by Stebbi Twist.
Já komið öll sæl og blessuð
Í
nýjustu V.Í.N.-ferðinni sem farin var í
höfuðstað norðurlands um síðustu helgi kom upp sú umræða um hvort ekki væri kominn tími á nýjar
V.Í.N.-peysur. Bæði eru margar af þessum gömlu orðnar slitnar sem og nýir limir hafa bæst í hópinn frá
síðustu kaupum.
Það kom sú hugmynd að slá til með
þessar peysur frá
Cintamani, sem eru bæði til í
karla- og
kvennasniði. Skv einhverjum heimildum gætum við fengið 35% afslátt af útsöluverðinu og svo myndi auðvitað merking bætast við.
Nú ætlar tízkuráð bara að starta umræðunni og fá að heyra álit þjóðarinnar á þessu máli, hvort fólk sé til í þetta eða barasta ekki, eða hafi hugmyndir um annað eða aðrar peysur. Nú er bara um gjöra að vera ófeimin við að tjá sig í skilaboðaskjóðunni hér að neðan
Kv
Tízkuráð
|
Published miðvikudagur, mars 21, 2012 by Stebbi Twist.
Jæja þá er komið að enn einni upptalningunni sem upphitun fyrir
Helgina. Þar sem nú er daginn tekið að lengja og stutt í
páska er kannski spurning að fara að huga að
undirbúnings-og
eftirlitsferð innúr. En það er eitthvað sem hægt er að sofa á, nú skulum við koma okkur að listanum góða
Fólk:
Stebbi TwistEldri BróðurinnKrunkaBergmannFrúinErfðaprinsinnGosiDanni DjúsBilliPlástradrottinginHvergerðingurinnBílar:
WillyGullvagninnJá það styttist betur heldur með hverri vikunni og er það vel. Svo er bara að vona að ekkert
eldgos skemmi fyrir okkur en eitt sem víst er að það verður farið í
undirbúnings-og
eftirlitsferð Jónsmessuhelgina með rölti yfir
5vörðuhálsKv
Skráningardeildin
|
Published mánudagur, mars 19, 2012 by Stebbi Twist.

Nú um síðustu helgi var hið árlega
Telemarkfestival haldið í
Hlíðarfjalli. Líkt og von er þá fór
V.Í.N. líka í sína árlegu
skíða-og menningarferð til
Agureyrish. Því miður var nú heldur fámennt þetta árið en á ferðinni voru:
Stebbi TwistKrunkaPlástradrottninginHvergerðingurinnMaggi á mótiElín RitaSvo fyldu með tvo varahjól
Síðan er gaman að segja frá því að á svæðinu voru líka:
Gvandala GústalaOddnýog dætur
í samfloti með
Jökla JollaAuðiÚlfari JökliÓli Kalmann.Það var skíðað eins lög gera ráð fyrir fös, laug og sun. Held að maður geti sagt með þokkalegri góðri samvizku að færið hefur sjaldan verið eins gott eins og á messudag ekki skemmdi svo veðrið fyrir. En það var svo sem ekkert að færinu heldur á laugardag nema skyggni var ansi takmarkað.
Svo var skemmtilegt að taka
Apres Ski uppí
Strýtuskála og renna sér niður á
Skíðahótel beint á lokahofið. Þar sem V.Í.N. tók verðlaun fyrir bezta búning einstaklings. Þá hefur V.Í.N. náð að hirða amk ein verðlaun síðustu þrjú árin. Það er vel
En höfum þetta ekki lengra og látum myndir tala sínu máli
hérKv
Skíðadeildin
|
Published miðvikudagur, mars 14, 2012 by Stebbi Twist.
|
Published mánudagur, mars 12, 2012 by Stebbi Twist.

Nú um síðustu helgi hélt
Litli Stebbalingurinn með
núbba úr
FBSR upp í
Bláfjöll. Þar sem ætlunin var að grafa snjóhús síðan sofa í því og hafa síðan snjóflóðapælingar á laugardeginum svona áður en halda skyldi heim á ný. Með í för voru tveir gildir limir
V.Í.N. en það voru:
Stebbi TwistEldri BróðurinnÞrátt fyrir að þetta hafi bara verið upp í Bláfjöll þá tókst okkur að rata í smá ævintýri á leiðinni með að festa rútuna á Bláfjallavegi. En með samstilltu átaki hafðist að losa hana. Svo var skundað upp í
Eldborgargil og grafið þar snjóhýsi til að gista í. Skemmst er frá því að segja að maður átti ansi náðuga nokkra tíma í svefni þar. Á laugardagsmorguninn fór í að grafa snjóflóðaprófíla og æfa sig í að gjöra samþjöppunarpróf. Eftir hádegismat, þegar logið var komið á ágætis hreyfingu og snjókoman búin að breytast í slyddu og síðan rigningu, var haldið til móts við langferðabílinn til að halda heim á leið.
Messudagurinn fór svo í leitaræfingu og pælingar. Fyrir þá sem hafa áhuga má skoða myndir frá helginni
hér
|
Published miðvikudagur, mars 07, 2012 by Stebbi Twist.
Jæja gott fólk nú er miðvika og slíkt þýðir bara eitt. Já, þið vitið hvað og hér kemur það.
Persónur:
Stebbi TwistEldri BróðurinnKrunkaBergmannFrúinErfðaprinsinnGosiDanni DjúsBilliPlástradrottinginHvergerðingurinnLeikendur:
WillyGullvagninnJá, allt að gerast greinilega því
tvær sálir hafa bæst í hópinn og er það vel. Svo nú bíðum við bara spennt hvað gerist á næztu vikum
Kv
Skráningardeildin
|
Published þriðjudagur, mars 06, 2012 by Stebbi Twist.

Eins og sjá má í tilkynningu hér í
þarnæztu færzlu fyrir neðan var ætlunin að hita upp fyrir
Agureyrish um
síðustu helgi og það helst í
Skálafelli. Eins og áður hefur verið
sagt frá þá tókst það á laugardeginum og nú skal tilkynna að það hafðist líka á messudag. Það í
Skálafelli líka. Aðeins fjölmennara var á messudag og einkar ánægjulegt að sjá
fulltrúa yngri kynslóðar skíðadeildar í Fellinu. En þau sem létu sjá sig voru:
Stebbi TwistKrunkhildurEldri BróðurinnYngri BróðurinnErnaMaggi á mótiElínAndrés ÞórBirgir Björn.
Hetja dagsins var svo
Maggi Brabra fyrir að draga
Eldri Bróðurinn að landi eftir að kauði hafði skítið hressilega í rjómann með að gleyma gaskútnum sem við komust það þegar átti að hefja grill. En engu að síður eiga
báðir ofangreindir aðilar þakkir skildar fyrir grill og að redda gasinu. En höfum þetta ekki lengra í bili og bendum bara á myndir
hérKv
Skíðadeildin
|
Published mánudagur, mars 05, 2012 by Stebbi Twist.

Eins og sjá má hér á
færslunni fyrir neðan þá var ætlunin að hefja
upphitun fyrir
skíða-og
menningarferð til
Agureyrish nú um rétt liðna helgi. Eftir smá vangaveltur var kýlt á að skella sér í Skálafell á laugardag og voru það fjórar manneskjur sem skunduðu upp í Mosfellsdal til þess að ástunda skíðamennsku. En það voru:
Stebbi TwistKrunkaVJEldri BróðurinnÞetta var sérdeilis aldeilis prýðilegt en undanbrautarfæri var frekar hart.
Krunka æfði sig aðeins í
Þelamerkursveiflunni og þegar matarhlé var þá var
grillið tekið fram og skella á grindina pullum og samlokum. En allavega ef fólk hefur áhuga þá má skoða myndir frá laugardeginum
hérKv
Skíðadeildin
|
Published fimmtudagur, mars 01, 2012 by Stebbi Twist.

Rétt eins og glöggir lesendur hafa eflaust áttað sig á þá er ekki nema hálfur mánuður eða 14.dagar sem gera tvær vikur í hina árlegu
skíða-og
menningarferð til
Agureyrish. Nú spyr maður; er ekki kominn tími á smá upphitun svo fólk komi nú ekki til með að líta út fyrir að vera meira fífl en venjulega. Reyndar er ekkert hægt að gera fyrir þá sem verða á
telemarkskíðum því þeir líta alltaf út fyrir að vera fífl. Í bezta falli asnalegir. En hvað um það.
S
kíðdeildin fékk þá flugu í höfuðið að reyna smala fólki í fjöllin um komandi helgi í hitting og skíðun. Hvort sem það er
Bláfjöll eða
Skálafell nema hvort tveggja verði. Kannski væri svo ekki vitlaust að grípa eins og eitt
grill með og brúka það til upphitunnar á
sunnlenskum pulsumNú væri gaman að fá smá álit þjóðarinnar um hvort það hafi áhuga á slíku og þá hvorn daginn, báða dagana eða hvot það vilji heldur Bláfjöll eða Skálafell. Koma svo og tjá sig. Skiptir þá engu hvort það er boðun eða afboðun
Kv
Skíðadeildin
|